Fréttasafn



11. sep. 2020 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk Mannvirki

Staðlaráð með fjarnámskeið um CE-merkingar véla

Staðlaráð Íslands stendur fyrir fjarnámskeiði um CE-merkingar véla fyrir framleiðendur og innflytjendur véla 30. september og 1. október. Markmiðið með námskeiðinu er að þátttakendur verði færir um að greina hvort vörur falli undir reglugerð um vélar og tæknilegan búnað (sbr. vélatilskipun ESB) og læri hvernig á að CE-merkja slíkar vörur að undangengnu áhættu- og samræmismati. Leiðbendur eru Arngrímur Blöndahl, tæknifræðingur hjá Staðlaráði Íslands, og Ágúst Ágústsson, tæknifræðingur hjá Vinnueftirlitinu. 

Á vef Staðlaráðs Íslands er hægt að fá frekari upplýsingar um námskeiðið.Fjárnámskeiðið er 2ja daga og kennt eftir hádegi fyrri daginn og fyrir hádegi seinni daginn.