Fréttasafn



11. jún. 2020 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk

Tækifæri og verðmæti í verndun hugverka

Verðmætin í verndun hugverka er yfirskrift greinar sem birt er í Fréttablaðinu í dag eftir þær Ástu S. Fjeldsted, framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs Íslands, Sigríði Mogensen, sviðsstjóra hugverkasviðs SI, og Borghildi Erlingsdóttur, forstjóra Hugverkastofunnar. Í greininni kemur fram að hvort sem það er einkaleyfi, vörumerki, hönnun eða höfundaréttarvarið efni þá séu hugverk nauðsynleg viðskiptatæki í nútíma iðnaði og alþjóðaviðskiptum. Draga megi lærdóm af hugverkafyrirtækjum á borð við CCP, Össur og Marel, sem byggi sinn árangur og verðmætasköpun á hugverkum. 

Í greininni segir að í umróti heimsfaraldurs og efnahagskreppu hafi nýsköpun, hugverk og hugvit aldrei verið mikilvægari. Tækifærin séu óþrjótandi og með réttum áherslum á sviði hugverkaverndar í íslensku atvinnulífi og hjá stjórnvöldum sé hægt að skapa grundvöll fyrir aukna verðmæta- og atvinnusköpun. Þá segir í greininni að líklegt sé að kórónuveirufaraldurinn muni virka sem hraðall fyrir tæknibreytingar og megi því gera ráð fyrir að mikilvægi hugverka verði enn meira. Íslensk fyrirtæki þurfi að bregðast við þessum nýja raunveruleika. Aukin áhersla á nýsköpun og verndun og hagnýtingu hugverka geti spilað lykilhlutverk í að skapa verðmæti og störf hér á landi, bætt samkeppnisstöðu og samkeppnishæfni Íslands og aukið velsæld. Rétt stjórnun og hagnýting hugverka geti skilað gríðarlega miklum ábata fyrir fyrirtæki og samfélagið í heild sinni. Til skemmri tíma muni aukin áhersla á nýsköpun og verndun hugverka styðja við viðspyrnu efnahagslífsins og til lengri tíma litið muni fjárfesting í nýsköpun skapa grundvöll fyrir sterkara atvinnulífi með aukinni getu til að nýta okkar helstu auðlind í að skapa verðmæti og störf, hugvitið.

Hér er hægt að lesa greinina í heild sinni.