Fréttasafn



11. okt. 2022 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk Nýsköpun

Tekur við málefnum nýsköpunar hjá SI

Nanna Elísa Jakobsdóttir, viðskiptastjóri á iðnaðar- og hugverkasviði SI, hefur tekið við málefnum nýsköpunar hjá Samtökum iðnaðarins.

Nanna Elísa er með BA-gráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands og MA-gráðu í alþjóðasamskiptum frá Columbia University. Hún hefur starfað hjá Samtökum iðnaðarins frá árinu 2020. Áður vann hún sem ráðgjafi fyrir Synergos og Unilever, sérfræðingur hjá Tent Partnership for Refugees og verkefnastjóri í málefnum hælisleitanda hjá Rauða krossinum.

Þá starfaði Nanna Elísa sem blaðamaður á á fréttastofu Stöðvar 2, Vísis, Fréttablaðsins og Bylgjunnar um árabil. Hún hefur jafnframt reynslu af félagsstörfum og var meðal annars formaður Landssamtaka íslenskra stúdenta og fulltrúi stúdenta í Háskólaráði HÍ. 

Vísir, 11. október 2022.