Samtök iðnaðarins hafa skilað umsögn um drög að frumvarpi um breytingar á lögreglulögum og fleiri lögum sem varða skipulagsbreytingar hjá lögreglu. Samtökin styðja breytingarnar en nýta tækifærið til að vekja athygli á langvarandi skorti á eftirliti með lögum um handiðnað nr. 42/1978.
Í umsögn sinni benda samtökin á að samkvæmt lögum um handiðnað er lögreglu falið eftirlit með löggiltum iðngreinum en að lögreglan hafi ekki haft bolmagn til þess að sinna frumkvæðiseftirliti á þessu sviði. Hafi það gert réttindalausum aðilum kleift að starfa óáreittir á markaði. Í mannvirkjaiðnaði geta brot á öryggiskröfum leitt til alvarlegra slysa, gallar í verkum valdið fjárhagstjóni og svört atvinnustarfsemi dregið úr skatttekjum ríkissjóðs. Í greinum á borð við snyrtifræði og hársnyrtiiðn hafa neytendur orðið fyrir tjóni og í alvarlegustu tilvikum hefur starfsemin tengst mansalsrannsóknum og brotum á vinnulöggjöf.
SI leggja til að eftirlitið verði fært til viðeigandi stofnana sem búa yfir sérfræðiþekkingu. SI hafa talað fyrir því að Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) taki við eftirliti í byggingariðnaði en Umhverfis- og orkustofnun við eftirliti sem og útgáfu starfsleyfa í þjónustu- og handverksgreinum. Samtökin leggja áherslu á að réttindi til að starfa í löggiltri iðngrein verði könnuð strax við útgáfu starfsleyfa og að tryggt verði að fyrirsvarsmenn hafi meistararéttindi.
Verði eftirlitið ekki fært annað leggja SI áherslu á að breytingarnar verði nýttar til að efla sérþekkingu og samstarf við aðrar eftirlitsstofnanir í baráttunni gegn svartri og ólöglegri atvinnustarfsemi.
Hér er hægt að nálgast umsögnina í heild sinni.



