Fréttasafn



16. sep. 2021

Tölvuleikjaiðnaður á Íslandi undirritar sáttmála

Fulltrúar Samtaka leikjaframleiðenda (IGI), Rafíþróttasamtaka Íslands (RÍSÍ) og Game Makers Iceland (GMI) undirrituðu sáttmála um öruggt starfsumhverfi í morgun í höfuðstöðvum CCP í Grósku.

Sáttmálinn er afdráttarlaus og sendir skýr skilaboð um heilbrigt starfsumhverfi í tölvuleikjaiðnaði. Í sáttmálanum kemur fram að samtökin líða ekki einelti, kynferðislega eða kynbundna áreitni eða ofbeldi af neinu tagi og munu markvisst vinna að því að koma í veg fyrir slíka óæskilega hegðun, grípa til aðgerða til að stöðva hana og koma í veg fyrir að hún endurtaki sig auk þess að styðja við þolendur.

Samtökin telja að stjórnendur og leiðtogar innan sinna raða séu í lykilstöðu til að móta uppbyggilega menningu og góða ásýnd tölvuleikjaiðnaðarins á Íslandi. Öruggt starfsumhverfi verður einungis búið til með því að unnið verði í anda sáttmálans og með því að sýna faglegt viðmót sem einkennist af tillitssemi, kurteisi, virðingu og umburðarlyndi.

Þorgeir F. Óðinsson, formaður Samtaka leikjaframleiðenda: „Leikjaiðnaður hefur vaxið hratt á undanförnum árum og starfsmönnum fjölgað ört. Til þess að við náum áframhaldandi efnahagslegri velsæld skiptir öllu máli að hver og einn upplifi virðingu og hvatningu í starfi. Jákvæðni er undanfari mannlegrar velgengni. Við þurfum öll gott og hvetjandi umhverfi ef við ætlum að ná árangri saman.“

Ólafur Hrafn Steinarsson, formaður Rafíþróttasamtaka Íslands: „Það er markmið okkar hjá RÍSÍ að byggja rafíþróttir fyrir alla og þá er mikilvægt að allir geti upplifað sig velkomna og örugga. Það gerist ekki af sjálfu sér, en rétt eins og við viljum vera leiðandi í barna- og unglingastarfi rafíþrótta í heiminum, þá viljum við einnig vera leiðandi þegar kemur að uppbyggingu á öruggu rafíþróttaumhverfi sem er laust við fordóma og áreitni. Umræðan í samfélaginu síðastliðna mánuði hefur sýnt það að mikilvægt er að hafa skýra umgjörð um þessi erfiðu mál. Því vildum við hvetja alla aðila innan okkar raða til þess að setja sér skýrar verklagsreglur og sameinast um það að fordæma hvers kyns ofbeldi og áreitni.“

Alexandra Diljá Bjargardóttir, meðstofnandi grasrótarsamtakanna Game Makers Iceland: „Samtökin okkar hafa alltaf lagt mikla áherslu á að öllum líði eins og þau séu örugg og velkomin óháð kyni og bakgrunni. Við erum þess vegna gríðarlega stolt af því að fá að taka þátt í þessu mikilvæga skrefi og taka skýra afstöðu ásamt iðnaðinum gegn hvers kyns ofbeldi. Það er mikilvægt að senda þau skilaboð til starfsmanna og iðkenda að þau mál sem upp koma sem tengjast einelti, áreitni eða ofbeldi verði tekin föstum tökum og ekki sópað undir teppi.“

Myndir/Birgir Ísleifur

Sattmali_mynd1Frá undirritun sáttmálans í höfuðstöðvum CCP í Grósku. Á myndinni eru, talið frá vinstri, Alexandra Diljá Bjargardóttir, meðstofnandi grasrótarsamtakanna Game Makers Iceland, Þorgeir F. Óðinsson, formaður Samtaka leikjaframleiðenda, og Ólafur Hrafn Steinarsson, formaður Rafíþróttasamtaka Íslands.

Sattmali_mynd2Hópurinn sem kom að undirbúningi sáttmálans, talið frá vinstri, Nanna Elísa Jakobsdóttir hjá Samtökum iðnaðarins, Haukur Steinn Logason hjá CCP, Ívar Kristjánsson hjá 1939 Games, Erna Arnardóttir hjá CCP, Þorgeir F. Óðinsson hjá Directive Games, Ólafur Hrafn Steinarsson hjá Rafíþróttasamtökum Íslands, Alexandra Diljá Bjargardóttir hjá Game Makers Iceland og María Guðmundsdóttir hjá Parity.

Þorgeir F. Óðinsson, formaður Samtaka leikjaframleiðenda, flutti ávarp áður en undirritunin fór fram.

Si_ccp_16092021_b-2Erna Arnardóttir, mannauðsstjóri CCP, sem kom að því að vinna sáttmálann las upp inngang hans.

mbl.is , 16. september 2021.

Vísir, 16. september 2021. 

Fréttablaðið, 16. september 2021.

Nútíminn, 16. september 2021.

Trölli, 16. september 2021.