Fréttasafn



14. maí 2021 Almennar fréttir Starfsumhverfi

Umsóknarfrestur um stuðningslán að renna út

Veiting stuðningslána til smærri rekstraraðila sem glíma við samdrátt vegna efnahagslegra áhrifa COVID-19 er einungis heimiluð til 31.maí næstkomandi. Þar sem nokkurn tíma getur tekið að afgreiða umsóknir er rekstraraðilum sem hyggjast sækja um stuðningslán ráðlagt að sækja um tímanlega fyrir lok mánaðar.

Á vef Stjórnarráðsins segir að smærri rekstraraðilum sem glíma við samdrátt vegna heimsfaraldurs kórónuveiru hafi staðið til boða að sækja um stuðningslán með ábyrgð ríkissjóðs. Nokkurn tíma geti tekið að afgreiða umsóknir en ekki verði veitt stuðningslán eftir lok þessa mánaðar þótt umsókn hafi borist fyrr. Rekstraraðilum, sem hyggjast sækja um stuðningslán, er því ráðlagt að sækja um tímanlega fyrir 31. maí 2021.

Nánari upplýsingar um stuðningslán er að finna á Ísland.is.