Beint í efni

Nýtt um­búða­reglu­verk ESB kemur harðast niður á litlum og smáum fram­leið­end­um

Nýtt umbúðaregluverk Evrópusambandsins kemur harðast niður á litlum og smáum framleiðendum sem eru nánast öll fyrirtæki á Íslandi í evrópskum skilningi. Það er miklu auðveldara fyrir risastór fyrirtæki að mæta svona auknum krōfum. Þetta segir Sigurður Helgi Birgisson, viðskiptastjóri á iðnaðar- og hugverkasviði SI, í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni þar sem rætt er um nýtt regluverk Evrópusambandsins um umbúðir. Hann segir að þetta sé í rauninni margslungin reglugerð og mestu breytingar á umbúðareglugerðinni sem hafi verið gerðar í Evrópu í yfir 30 ár. „Þetta er í rauninni umhverfismiðuð reglugerð þannig að það er sett á framleiðendur og sett á innri markað Evrópusambandsins. Heilt yfir gildir það innan allra ríkja en er í rauninni sett til þess að ná vissum umhverfismarkmiðum eins og að minnka plastmagni í umferð. Og eru í rauninni líka að reyna að knýja fram þá aukna endurvinnslu, sem sagt endurnot á umbúðum.“ Hann segir að íslenskir framleiðendur þurfi að skrá umbúðirnar sínar þurfi þeir að flytja út.

„Inn í þessu reglugerð er svokölluð framlengd framleiðendaábyrgð sem að reyndar matvælaframleiðendur hér á landi þekkja vel. Við erum með kerfi sem heitir úrvinnslusjóður þar sem fyrirtæki greiða fyrir umbúðirnar upp á að það sé þá búið að greiða fyrir að þeim sé fargað og unnið úr þeim og svo framvegis í framhaldinu. Nú er verið að setja þær kröfur á alla þá sem flytja vörur til dæmis á milli landa inn í annað Evrópuríki. Þá ert þú að setja ekki vöruna heldur líka umbúðirnar þar á markað. Þarft þá að vera hluti af þessu framlengda framleiðendaábyrgðarkerfi í því ríki þannig að þú þarft að skila inn gögnum um hvað er í þessum umbúðum fyrir hvert og eitt ríki sem að gengur svolítið gegn þessari hugsun um þennan sameiginlega innri markað sem á einmitt að gera það að verkum að ef þú uppfyllir skilyrði á í einu ríki þá áttu að geta flutt vöruna óhindrað á milli ríkja en það er orðið dálítið öfugsnúið.“

Sigurður segir að þessu fylgi bæði aukinn kostnaður og umstang í gagnaskilum. „Þú þarft að vera þá með auknar upplýsingar um umbúðirnar og þar er verið að fara að setja kröfur um að ákveðið hlutfall af endurunnu plasti í plasti sem þú ert að nota í umbúðir og svo framvegis.“ Hann segir að í framtíðinni verði mikil eftirspurn væntanlega eftir hágæða vottuðu plasti sem framleiðendur þurfi að vera með í öllum í plastumbúðum sínum til að mega senda vöruna til ESB landa.

Reykjavík síðdegis á Bylgjunni, 18. september 2026.

Nýtt umbúðaregluverk ESB kemur harðast niður á litlum og smáum framleiðendum - Samtök Iðnaðarins