Tækifæri í einföldun regluverks og stjórnsýslu var til umræðu á vel sóttum fundi Samtaka iðnaðarins sem fór fram í dag í Kaldalóni í Hörpu. Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, hóf fundinn á að segja frá því að yfir 60% evrópskra fyrirtækja telji regluverk hindra fjárfestingu og að Evrópusambandið hafi í kjölfarið hafist handa við að einfalda regluverk og draga úr skriffinsku en að vandinn væri ekki fyrst og fremst gæði reglnanna heldur flækjustig þeirra og framkvæmd. Hann sagði frá því að samkvæmt mælikvarða OECD á stjórnsýslu- og regluverksbyrði mælist Ísland með mesta reglubyrði. Þá greindi Sigurður frá aðdraganda fundarins sem meðal annars fólst í þátttöku hátt í 200 félagsmanna SI á vinnufundum sem haldnir voru í Reykjavík og á Akureyri. Einnig sagði hann frá helstu niðurstöðum úr tveimur greiningum SI. Annars vegar er um að ræða greiningu sem byggir á könnun sem Outcome framkvæmdi meðal stjórnenda aðildarfyrirtækja SI sem ber yfirskriftina Minni flækjur og meiri fyrirsjáanleiki skila mestu. Hins vegar greining SI sem byggir á könnun Maskínu meðal stjórnenda fyrirtækja og stofnana sem ber yfirskriftina Regluverk heftir vöxt hjá sex af hverjum tíu iðnfyrirtækjum. Í lok erindis síns greindi Sigurður frá þeim tíu tillögum sem Samtök iðnaðarins leggja fram til umbóta. Hann sagði þessar tillögur eiga það sameiginlegt að margar þeirra kalli hvorki á lagabreytingar né aukin útgjöld, flestar megi hefja strax og engin þeirra gefi afslátt af öryggi eða gæðum.
Eftir framsögu Sigurðar tók Lilja Björk Guðmundsdóttir, yfirlögfræðingur SI, við og stýrði umræðum með Gesti Péturssyni, forstjóra Umhverfis- og orkustofnunar, Margréti Gísladóttur, framkvæmdastjóra Samtaka fyrirtækja í landbúnaði, og Þorsteini Víglundssyni, formanni SI.
Að lokum ræddi Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, við Hönnu Katrínu Friðriksson, atvinnuvegaráðherra.
Inn á milli dagskrárliða voru sýnd þrjú myndbönd þar sem félagsmenn SI svara því hvað hamlar íslenskum iðnaði, hver rót vandans er og hverjar lausnirnar eru.
Hér fyrir neðan er hægt að nálgast upptöku af fundinum og myndböndin sem sýnd voru á fundinum.
Upptakan af fundinum er á þessari vefslóð: https://vimeo.com/1246255643






