Beint í efni

Regluverk heftir vöxt hjá sex af hverjum tíu iðn­fyr­ir­tækj­um

Í nýrri greiningu SI kemur fram að um 58% stjórnenda í iðnaði segja að lög og reglugerðir hins opinbera hafi heft vöxt fyrirtækis síns á síðustu fimm árum en aðeins 5% að þau hafi stutt við vöxtinn.

Althingi

Um 58% stjórnenda í iðnaði segja að lög og reglugerðir hins opinbera hafi heft vöxt fyrirtækis síns á síðustu fimm árum, en aðeins 5% að þau hafi stutt við vöxtinn. Í svörum stjórnenda fyrirtækja og stofnana í öllum greinum eru hlutföllin 47% og 15%. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem Maskína gerði fyrir Samtök iðnaðarins (SI) meðal 876 stjórnenda fyrirtækja og stofnana í september og október 2026.

HELSTU NIÐURSTÖÐUR

  • Helmingur stjórnenda telur regluverkið íþyngjandi. Um 52% stjórnenda telja lög og regluverk hins opinbera mjög eða fremur mikið íþyngjandi fyrir fyrirtæki sitt en 18% lítið eða alls ekki íþyngjandi. Í iðnaði er hlutfallið 59%.
  • Regluverkið heftir vöxt iðnfyrirtækja. Í iðnaði segja 58% stjórnenda að regluverkið hafi heft vöxt fyrirtækisins á síðustu fimm árum en 5% að það hafi stutt við hann.
  • Stærri fyrirtæki hafa fleiri snertifleti við stjórnsýsluna og finna oftar fyrir íþyngjandi regluverki. Um 70% stjórnenda í fyrirtækjum með 5 ma.kr. veltu eða meira telja regluverkið íþyngjandi og 65% að það hefti vöxt, samanborið við 42% og 39% í fyrirtækjum með veltu undir 200 m.kr.
  • Rúmur fimmtungur hefur borið kostnað vegna óvissu um framkvæmd regluverks. Um 22% stjórnenda segja fyrirtækið hafa þurft að leggja út í kostnað eða leita réttar síns vegna óvissu um framkvæmd regluverks á síðustu fimm árum. Í iðnaði er hlutfallið svipað eða um 21%.
  • Bæði lögin og framkvæmdin valda hindrunum. Af þeim sem hafa mætt ágreiningi eða hindrunum af hendi hins opinbera segja 33% íþyngjandi lög eða reglugerðir lýsa því best, 37% framkvæmdina og 30% hvort tveggja.
  • Skattar, flókið regluverk og hægagangur í leyfismálum hefta vöxt. Í opnum svörum nefna stjórnendur einkum skatta og opinber gjöld, flókið og síbreytilegt regluverk, langan afgreiðslutíma í skipulags-, byggingar- og leyfismálum og gullhúðun EES-reglna sem hafa heft vöxt fyrirtækja þeirra. Þeir sem telja regluverkið hafa stutt við vöxt nefna langoftast opinbera hvata, svo sem skattahvata vegna rannsókna og þróunar.

Niðurstöðurnar sýna að regluverkið er ekki aðeins kostnaðarliður heldur hindrun í vegi vaxtar. Það á sérstaklega við í iðnaði og hjá stærri fyrirtækjum sem standa undir stórum hluta fjárfestingar og verðmætasköpunar í hagkerfinu. SI telja að einföldun regluverks þurfi bæði að ná til lagasetningarinnar sjálfrar og framkvæmdar hennar hjá stofnunum ríkis og sveitarfélaga.  

Regluverkið íþyngjandi fyrir helming fyrirtækja

Um 21% stjórnenda telja lög og regluverk mjög mikið íþyngjandi fyrir fyrirtæki sitt og 31% fremur mikið íþyngjandi, eða 52% samtals. Tæp 30% telja þau í meðallagi íþyngjandi og 18% lítið eða alls ekki íþyngjandi. Á kvarðanum 1-5, þar sem 5 merkir mjög íþyngjandi, er meðaleinkunnin 3,5 í atvinnulífinu í heild og 3,7 í iðnaði.

Mest er byrðin metin í útgerð, fiskvinnslu og matvælaframleiðslu, þar sem 83% stjórnenda telja regluverkið íþyngjandi og enginn lítið eða ekki íþyngjandi. Iðnaður kemur þar á eftir. Í iðnaði telja 59% stjórnenda regluverkið íþyngjandi og 11% lítið eða ekki íþyngjandi. Minnst er byrðin metin meðal stjórnenda í opinberri stjórnsýslu, en þar telja 29% regluverkið íþyngjandi og 20% lítið eða ekki íþyngjandi. Þeir sem starfa innan stjórnsýslunnar meta því byrðina mun minni en þeir sem búa við hana í rekstri sínum.

Regluverk_mynd1

Regluverkið heftir vöxt iðnfyrirtækja

Skýrastur er munurinn á iðnaði og atvinnulífinu í heild þegar spurt er um áhrif laga og regluverks á vöxt. Um 58% stjórnenda í iðnaði segja að lög og reglugerðir hins opinbera hafi heft vöxt fyrirtækis síns á síðustu fimm árum, samanborið við 47% í atvinnulífinu í heild. Aðeins 5% stjórnenda í iðnaði segja að regluverkið hafi stutt við vöxtinn, en 15% í atvinnulífinu í heild. Í iðnaði hefur regluverkið því mun oftar staðið í vegi fyrir vexti en stutt við hann. Í opinberri stjórnsýslu er þessu öfugt farið en þar segja 43% að lög og reglugerðir hins opinbera hafi stutt við vöxt en ekki nema 18% að það hafi heft vöxt. Í útgerð, fiskvinnslu og matvælaframleiðslu segja 67% stjórnenda að regluverkið hafi heft vöxt en aðeins 5% að það hafi stutt við vöxt.

Regluverk_mynd2

Þegar stjórnendur eru spurðir hvaða lög og reglugerðir hafi heft vöxt fyrirtækja þeirra komu 180 svör. Nefna þeir oftast skatta og opinber gjöld, einkum tryggingagjald, virðisaukaskatt og kílómetragjald, auk flókins og síbreytilegs regluverks, skýrsluskila og eftirlits sem sagt er leggjast sérstaklega þungt á lítil og meðalstór fyrirtæki. Margir nefna langan afgreiðslutíma í skipulags-, byggingar- og leyfismálum og ósamræmi í túlkun milli stofnana og sveitarfélaga. Þá er ítrekað vísað til „gullhúðunar“ við innleiðingu EES-reglna og til túlkunar Samkeppniseftirlitsins á samkeppnislögum. Þegar stjórnendurnir voru spurðir hvaða lög og reglugerðir hafi stutt við vöxt fyrirtækja þeirra komu 47 svör sem er ríflega fjórðungur þess fjölda svara sem komu þegar spurt var um hvað heftir vöxtinn. Þeir sem telja að lög og reglur hafi  stutt við vöxt nefna langoftast opinbera hvata, svo sem skattahvata vegna rannsókna og þróunar.

Regluverk_mynd3

Stærri fyrirtæki hafa fleiri snertifleti við stjórnsýsluna

Stærri fyrirtæki eru gjarnan í breiðari starfsemi en smærri fyrirtæki og heyra undir umfangsmeira regluverk ásamt því að eiga í meiri samskiptum við stjórnsýslustofnanir. Um 70% stjórnenda í fyrirtækjum með 5 ma.kr. veltu eða meira telja regluverkið íþyngjandi, samanborið við 42% stjórnenda fyrirtækja með veltu undir 200 m.kr. Þá segja 65% stjórnenda stærstu fyrirtækjanna að regluverkið hafi heft vöxt, en um 40% í öðrum stærðarflokkum.

Munurinn er enn meiri þegar spurt er hvort fyrirtækið hafi þurft að leggja út í kostnað eða leita réttar síns, fyrir dómstólum eða með kærum, vegna óvissu um framkvæmd regluverks hins opinbera á síðustu fimm árum. Það á við um 39% fyrirtækja með 5 ma.kr. veltu eða meira og 44% fyrirtækja með 150 starfsmenn eða fleiri, en um 11% minnstu fyrirtækjanna. Í heild er hlutfallið 22% og svipað í iðnaði, eða um 21%. Í útgerð, fiskvinnslu og matvælaframleiðslu er það hins vegar hærra eða 36%.

Regluverk_mynd4

Minni fyrirtæki finna þyngri byrðar

Þótt stjórnendur stærri fyrirtækja verði oftar varir við regluverkið segir það ekki alla söguna. Könnunin mælir hversu íþyngjandi stjórnendur telja regluverkið í heild, en ekki hvað það kostar miðað við umfang rekstrarins. Stór hluti kostnaðar við að fylgja reglum er fastur kostnaður, svo sem skýrslugerð, vottanir, úttektir, leyfisumsóknir og þekking á síbreytilegum kröfum. Hann vegur hlutfallslega þyngst hjá minni fyrirtækjum, sem hafa sjaldnast sérhæft starfsfólk til að sinna þessum verkefnum.

Þetta endurspeglast í opnum svörum stjórnenda. Nokkrir nefna sérstaklega að skattar, gjöld og flóknar reglur leggist þungt á lítil fyrirtæki. Þar eru nefndar kröfur um viðbragðsáætlun í 25 manna fyrirtæki, endurskoðunarskylda við tekjuviðmið sem talið er of lágt og kostnaðarsöm jafnlaunavottun. Einnig er nefnt eftirlit sem kostar hundruð þúsunda króna á mánuði. Þá benda stjórnendur á að ósamræmi í kröfum milli eftirlitsaðila geri litlum fyrirtækjum erfitt að fylgja reglunum.

Regluverkið getur þannig orðið þröskuldur einmitt þegar frumkvöðlar og vaxandi fyrirtæki eru að stíga næsta skref. Einföldun regluverks þarf því að taka mið af fyrirtækjum af öllum stærðum: lækka fastan kostnað hjá þeim minnstu og ryðja hindrunum úr vegi þeirra sem eru að vaxa.

Bæði lögin og framkvæmdin valda hindrunum

Um helmingur stjórnenda segir fyrirtæki sitt eða stofnun hafa mætt ágreiningi eða hindrunum af hendi hins opinbera. Af þeim segja 37% að framkvæmd laga eða reglugerða, þ.e. túlkun, eftirlit, afstaða eða vinnubrögð hins opinbera, lýsi vandanum best, 33% að íþyngjandi lög eða reglugerðir geri það og 30% hvort tveggja. Framkvæmdin kemur því við sögu í um tveimur af hverjum þremur tilvikum og lögin sjálf í svipuðum fjölda.

Regluverk_mynd5

Í iðnaði vega lögin sjálf heldur þyngra. Þar nefna 36% íþyngjandi lög eða reglugerðir, 28% framkvæmdina og 36% hvort tveggja. Lögin koma því við sögu í um 72% tilvika í iðnaði og framkvæmdin í um 64%. Niðurstöðurnar sýna að einföldun regluverks og skilvirk stjórnsýsluframkvæmd þurfa að haldast í hendur. Ekki dugar að einfalda lagatexta ef framfylgd regluverks er ófyrirsjáanleg og samrýmanleg. Niðurstöðurnar sýna að ákall er eftir skýru og fyrirsjánlegu starfsumhverfi.

Um könnunina

Könnunin var gerð af Maskínu fyrir SI dagana 21. september til 12. október 2026. Svarendur voru 876 stjórnendur fyrirtækja og stofnana, þar á meðal í opinberri stjórnsýslu. Úrtakið var samsett úr stjórnendapanel Maskínu og þjóðgátt, og svör voru vegin eftir landsvæðum, stærð fyrirtækja og starfsgreinum. Hlutföll eru reiknuð af þeim sem tóku afstöðu, og svörin „veit ekki“ og „vil ekki svara“ eru undanskilin. Fjöldi svara við einstökum spurningum var 700–840 í heild og 124–149 í iðnaði. Vikmörk í iðnaði eru allt að ±8 prósentustig. Opin svör voru tekin saman af Maskínu. Flokkun starfsgreina er Maskínu. Matvælaframleiðsla er þar flokkuð með útgerð og fiskvinnslu en ekki með iðnaði.

PDF-útgáfa af greiningunni.