Beint í efni

Tíu tillögur SI um einföldun regluverks og stjórnsýslu

Reykjavik

Tillögur Samtaka iðnaðarins um tækifæri í einföldun regluverks og stjórnsýslu sem kynntar voru á opnum fundi samtakanna sem fór fram í dag í Hörpu.

Fyrirsjáanleg framkvæmd 

1.

Aukið gagnsæi við afgreiðslu mála og lögbundin tímamörk virt. Tryggja þarf aukið gagnsæi málsmeðferðar fyrir afgreiðslu leyfa, umsókna og umsagna. Auka þarf yfirsýn fyrirtækja þar sem umsækjandi fær upplýsingar um stöðu máls og ástæður tafa. 

2.

Sambærileg mál fái sambærilega afgreiðslu. Túlkun, gagnakröfur og leiðbeiningar verði samræmdar milli stofnana og sveitarfélaga. Einfalda þarf framsetningu leiðbeininga til að tryggja að þær séu auðskiljanlegar. 

3.

Frammistaða stofnana mæld og birt. Afgreiðslutími og reynsla þjónustuþega verði mæld og birt reglulega, svo stofnanir geti lært hver af annarri. 

4.

Frekari sameiningar með mælanlegum markmiðum um betri þjónustu. Skoða þarf fýsileika þess að sameina stofnanir með aukinni skilvirkni og þjónustu að leiðarljósi.  Hverri sameiningu fylgi markmið og mælikvarðar sem sýna hvort þjónustustig aukist og verði skilvirkari. 

5.

Athugasemdir stofnana komi fram á fyrstu stigum. Sú leið sem nú er farin í orkumálum, að sameina leyfi í eina leyfisveitingu, verði skoðuð í fleiri málaflokkum. Stjórnvald kappkosti við að koma fram með allar athugasemdir sínar á fyrstu stigum málsmeðferðar. 

6.

Gögnum skilað einu sinni til sömu stofnuninnar. Koma þarf í veg fyrir tvíverknað í samskiptum fyrirtækja við sömu stofnanirnar. „Skila einu sinni“ regla verði innleidd. 

7.

Skráning í stað starfsleyfis þar sem áhætta er lítil. Áfram verði haldið á þeirri braut að endurskoða grundvöll starfsleyfis fyrirtækja eftir áhættumati. 

Regluverk og lagasetning 

8.

Einföldun verði viðvarandi verkefni. Samráðshópur ríkis og atvinnulífs verði varanlegur farvegur með árlegri áætlun og eftirfylgni. Fullnægjandi áhrifamat verði ófrávíkjanleg krafa við lagasetningu. 

9.

EES-reglur án gullhúðunar og farið verði í skipulagða afhúðun. Komið verði í veg fyrir gullhúðun og stjórnvöld fari í skipulagða endurskoðun á afhúðun. 

10.

Innleiðing lagabreytinga taki mið af áhrifamat. Ný lög og reglugerðir taki gildi með tilliti til áhrifamats. Því meiri kostnaður og breytingar sem lagabreyting kallar á því meira svigrúm og tíma fá fyrirtæki til að bregðast við breytingum í starfsumhverfinu.