Ófyrirsjáanleg túlkun reglna og sein afgreiðsla mála hjá hinu opinbera draga úr fjárfestingu og hagvexti og bitna á endanum á lífskjörum. Þetta segir Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, í frétt Morgunblaðsins. Í fréttinni kemur fram að könnun Outcome fyrir samtökin sýni að 72% þeirra sem tóku afstöðu að einfaldari reglur og styttri og fyrirsjáanlegri afgreiðsla erinda hefðu mikil jákvæð áhrif á reksturinn og að málsmeðferð opinberra aðila hafði tafið verkefni eða fjárfestingar hjá 58% fyrirtækjanna.
Í Morgunblaðinu segir Sigurður niðurstöðurnar skýr skilaboð til stjórnvalda. Fyrirtækin kalli fyrst og fremst eftir skýrleika, skilvirkni og fyrirsjáanleika. „Fyrirtæki geta lagað sig að flóknu og kostnaðarsömu regluverki, þótt flækjustigið sé í raun sóun fyrir samfélagið. En þau eiga erfitt með að gera áætlanir þegar túlkun reglnanna er ófyrirsjáanleg og afgreiðsla mála dregst á langinn.“
Sigurður segir umhugsunarvert hversu miklum tíma og fjármunum fyrirtæki þurfi að verja í að uppfylla kröfur regluverksins í stað verðmætasköpunar og að mikil tækifæri séu til úrbóta sem þurfi ekki endilega að kalla á lagabreytingar eða aukin ríkisútgjöld.
Morgunblaðið, 12. nóvember 2026.
Bítið á Bylgjunni
Sigurður ræddi einnig um tækifæri í einföldun regluverks og stjórnsýslu í Bítinu á Bylgjunni. Hér er hægt að hlusta á viðtalið:
Bítið á Bylgjunni, 12. nóvember 2026.
Spegillinn á Rás 1
Í Speglinum á Rás 1 var umfjöllun um það helsta sem kom fram á opnum fundi Samtaka iðnaðarins í Hörpu. Hér er hægt að hlusta á umfjöllunina:
Spegillinn á Rás 1, 12. nóvember 2026.



