Fréttasafn



26. jún. 2019 Almennar fréttir Efnahagsmál Starfsumhverfi

Vaxtalækkun Seðlabankans rétt viðbrögð við niðursveiflunni

Samtök iðnaðarins fagna því að peningastefnunefnd Seðlabankans hafi ákveðið að lækka vexti bankans um 0,25 prósentur. Til að hjálpa fyrirtækjum og heimilum að takast á við samdrátt í efnahagslífinu telja Samtök iðnaðarins mikilvægt að peningastefnunefndin lækki stýrivexti Seðlabankans. Með lægri vöxtum má m.a. efla fjárfestingu og nýsköpun, auka kaupmátt heimilanna og draga úr atvinnuleysi, líkt og segir í nýlegri greiningu SI um hagstjórn í niðursveiflu.

Verðbólgan er að hjaðna, verðbólguhorfur hafa batnað og verðbólguvæntingar hafa verið að lækka og stefna í 2,5% verðbólgumarkmið Seðlabankans. Langtímaverðbólguvæntingar á markaði eru nú rétt við verðbólgumarkmiðið. Að mati SI gefur þetta peningastefnunni töluvert svigrúm til að milda þá niðursveiflu sem nú er hafin. Raunstýrivextir eru mjög háir og draga þarf úr taumhaldi peningastefnunnar m.v. stöðu og horfur í efnahagsmálum.

Peningastefnunefndin hóf vaxtalækkunarferli með lækkun stýrivaxta bankans 22. maí síðastliðinn um 0,5 prósentur. Stýrivextir bankans höfðu þá verið óbreyttir frá því að nefndin ákvað að hækka þá um 0,25 prósentur í byrjun nóvember 2018. Samtals hefur nefndin nú lækkað stýrivexti bankans um 0,75 prósentur á tæplega mánuði. Sýnir nefndin með þessu að hún vilji bregðast skjótt við breyttum aðstæðum í efndahagslífinu. Ástæða er til að fagna því.

Rökin fyrir lækkuninni nú og í maí eru m.a. að hagvaxtarhorfur hafi breyst verulega til hins verra. Í spá bankans sem birt var samhliða ákvörðuninni í maí er í stað hagvaxtar reiknað með samdrætti í hagkerfinu í ár. Einnig bendir nefndin á í rökstuðningi sínum að verðbólguvæntingar hafi lækkað m.a. vegna þess að niðurstöður kjarasamninga voru í betra samræmi við verðbólgumarkmiðið en margir bjuggust við. Benti nefndin á að verðbólguvæntingar til lengri tíma væru komnar undir 3%.

Næsta vaxtaákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans verður kynnt 28. ágúst nk. Að mati SI er full ástæða til þess að halda vaxtalækkunarferlinu áfram þá.

Styrivaxtamynd-juni