Við eigum að leggja metnað í EES og EFTA samstarfið
EES-samningurinn veitir íslenskum fyrirtækjum aðgang að 450 milljóna íbúa markaði og innri markaði evrópska efnahagssvæðisins án hindrana. Við eigum að leggja metnað í EES og EFTA samstarfið og hafa skoðun og áhrif á hvernig það þróast. Þetta segir Sigríður Mogensen, sviðsstjóri iðnaðar- og hugverkasviðs SI og formaður ráðgjafanefndar EFTA, meðal annars í grein í Viðskiptablaðinu með yfirskriftinni Virk hagsmunagæsla á vettvangi EES og EFTA.
Íslensk fyrirtæki búi oft við þyngra regluverk en samkeppnisaðilar á innri markaði EES
Sigríður segir í greininni að borið hafi á talsverðri gagnrýni í garð þessa mikilvæga alþjóðasamstarfs Íslands en hún stafi ekki síst af því að í gegnum EES sé hluti af stóru og viðamiklu regluverki Evrópusambandsins (ESB) innleitt í íslensk lög. Þá hafi svokölluð gullhúðun, heimatilbúnar viðbætur við lágmarksreglur, verið algeng hér á landi og gert það að verkum að íslensk fyrirtæki búi oft við enn þyngra regluverk en samkeppnisaðilar á innri markaði EES. Gullhúðun dragi úr samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs og sé allra tap. Það græði enginn á henni.
Beita okkur gagnvart þróun regluverks ESB með virkri hagsmunagæslu
Sigríður segir að Ísland eigi ríka hagsmuni á vettvangi EES og EFTA og við þurfum að vera virk í samstarfinu, hafa skoðun á þróun EES samningsins og fríverslunarsamningum, veita aðhald og huga að langtímahagsmunum. Hún segir að við þurfum einnig að beita okkur gagnvart þróun regluverks ESB með virkri hagsmunagæslu. Þar sé mikilvægt að stjórnvöld, þingið, atvinnulíf og aðilar vinnumarkaðarins gangi í takt. Greina þurfi hagsmuni snemma í mótunarferli regluverks, huga að undanþágum þar sem það eigi við og standi með íslenskum hagsmunum.
Stórar áskoranir í EES samstarfinu vegna breyttrar heimsmyndar
Þá kemur fram í grein Sigríðar að Evrópa sem efnahagssvæði hafi dregist hlutfallslega aftur úr öðrum stórum og mikilvægum efnahagssvæðum á síðustu árum, svo sem Bandaríkjunum. Þetta hafi leitt til tímabærrar umræðu um íþyngjandi regluverk og áhrif þess á atvinnulíf og efnahag í Evrópu. Það séu stórar áskoranir fram undan í EES samstarfinu, vegna breyttrar heimsmyndar, og við þurfum stöðugt að horfa til hagsmuna Íslands á þessum mikilvæga vettvangi. Hún segir að sem formaður ráðgjafanefndar EFTA hafi hún sett samkeppnishæfni rækilega á dagskrá. Ráðgjafanefnd og þingmannanefnd EFTA fundi tvisvar á ári með utanríkis- og viðskiptaráðherrum EFTA ríkjanna og veiti ráðgjöf og aðhald gagnvart EES og EFTA samstarfinu. Það sé mikil virkni í EFTA um þessar mundir og nýlega hafi verið undirritaður fríverslunarsamningur við Indland og í síðustu viku hafi einnig verið undirritaður uppfærður fríverslunarsamningur við Chile. Á vettvangi EFTA sé nú unnið að fríverslunarsamningi við MERCOSUR ríkin og fjölmörg önnur lönd og svæði. Allt muni þetta opna nýja markaði og greiða leiðina fyrir íslenskan útflutning á komandi árum.
EES-samningurinn mikilvægasti viðskiptsamningur Íslands
Í niðurlagi greinarinnar segir Sigríður að fram undan séu stór verkefni sem lúti að regluverki á sviði loftslags- og umhverfismála og iðnaðar heilt yfir. Í sumum tilfellum þurfi að meta hvort skynsamlegt sé að taka ESB gerðir inn í EES-samninginn eða standa utan þeirra. Hún segir að Samtök iðnaðarins muni áfram standa vaktina í þeirri hagsmunagæslu í góðu samstarfi við íslensk stjórnvöld. EES-samningurinn sé ekki fullkominn og það megi taka undir margt í gagnrýni á hann. Þrátt fyrir það sé hann mikilvægasti viðskiptasamningur Íslands og kostir hans vegi mun þyngra en gallar. Það skipti miklu máli að unnið sé markvisst að hagsmunagæslu Íslands á vettvangi bæði EES og EFTA til framtíðar.
Viðskiptablaðið, 3. júlí 2024.