Fréttasafn



3. okt. 2023 Almennar fréttir Menntun

Vinnustaðanámssjóður auglýsir eftir umsóknum

Vinnustaðanámssjóður auglýsir eftir umsóknum en frestur rennur út 7. nóvember kl. 15. Auglýst er eftir umsóknum um styrki vegna vinnustaðanáms á tímabilinu 1. janúar 2023 til 31. október 2023. Um er að ræða breytingu á tímabili styrkja frá fyrri úthlutunum og verða nóvember og desember til úthlutunar á næsta ári.

Sjóðurinn veitir styrki til fyrirtækja og stofnana vegna vinnustaðanáms og starfsþjálfunar sem er skilgreindur hluti af starfsnámi samkvæmt aðalnámskrá framhaldsskóla. Markmið sjóðsins er að hvetja fyrirtæki og stofnanir til þess að taka við nemendum sem stunda vinnustaðanám sem hluta af námi á framhaldsskólastigi og gera þeim kleift að ljúka tilskildu vinnustaðanámi.

Á vef sjóðsins er hægt að nálgast umsóknargögn og leiðbeiningar.