Beint í efni

Aukin samþætting norrænna markaða í brennidepli

Fulltrúar SI tóku þátt í árlegum fundi formanna og framkvæmdastjóra norrænna systursamtaka SI sem haldinn var í Kaupmannahöfn.

Fulltrúar Samtaka iðnaðarins, Þorsteinn Víglundsson, formaður, Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri, og Lilja Björk Guðmundsdóttir, yfirlögfræðingur, tóku þátt í árlegum fundi formanna og framkvæmdastjóra norrænna systursamtaka SI sem haldinn var í Kaupmannahöfn 27.-28. september.  

Á fundinum var samkeppnishæfni Norðurlandanna í brennidepli, þá sérstaklega norræni innri markaðurinn og hvernig norrænt atvinnulíf geti í auknum mæli talað einni röddu. Tillögur þess efnis voru samþykktar og hefur þeim verið komið til stjórnvalda á öllum Norðurlöndum í kjölfari fundarins. Þá var rætt um viðbrögð Evrópu við breyttum geopólitískum aðstæðum og hvernig styrkja megi viðnámsþrótt, samkeppnishæfni og áhrif Norðurlandanna. Christina Egelund, ráðherra vísinda, háskóla og stafrænna mála fór yfir áherslur dönsku ríkisstjórnarinnar í menntamálum og vísindum.  

Skammtatækni og samkeppnisforskot 

Fundargestir heimsóttu Novo Nordisk Foundation þar sem rætt var um uppbyggingu norræns vistkerfis á sviði skammtatækni. Lögð var áhersla á að skammtatækni hefði stefnumótandi áhrif á samkeppnishæfni, viðnámsþrótt og tæknilegt sjálfstæði Evrópu.  

Þá var Microsoft Quantum Lab og QuNorth heimsótt þar sem fundargestir fengu kynningu á skammtafræði og hvernig skammtatækni er að færast frá grunnrannsóknum yfir í hagnýta iðnaðartækni fyrir m.a. þróun á lyfjum. Sérstaklega var rætt um hvernig Norðurlöndin geti byggt upp getu á þessu sviði og hvernig fyrirtæki geti undirbúið sig og nýtt framtíðarmöguleika skammtatækni. 

Maciej Witucki, forseti BusinessEurope, og Markus Beyrer, framkvæmdastjóri BusinessEurope, sóttu fundinn. Þar gafst fulltrúum norrænu samtakanna tækifæri til að ræða áherslur BusinessEurope og samstarf evrópskra atvinnulífssamtaka við nýjan forseta samtakanna.  

Á fundinum var lögð áhersla á mikilvægi þess að norrænt atvinnulíf efli samstarf sitt og komi sameiginlegum áherslum með skýrari hætti á framfæri innan Evrópu. Norðurlöndin eiga sameiginlega hagsmuni að gæta þegar kemur að opnum mörkuðum, öflugu rannsóknar- og nýsköpunarumhverfi, traustum innviðum og samkeppnishæfu starfsumhverfi fyrirtækja.