Beint í efni

Einfaldara og samræmdara regluverk um opinber innkaup

SI ásamt systursamtökum sínum á Norðurlöndum hafa sent frá sér sameiginlegt afstöðuskjal þar sem lýst er yfir stuðningi við áform framkvæmdastjórnar ESB um endurskoðun regluverks um opinber innkaup.

Norðurlönd

Samtök iðnaðarins hafa ásamt systursamtökum sínum á Norðurlöndum sent frá sér sameiginlegt afstöðuskjal þar sem lýst er yfir stuðningi við áform framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um endurskoðun regluverks um opinber innkaup. Samtökin leggja áherslu á að endurskoðunin verði nýtt til að einfalda regluverk, draga úr stjórnsýslubyrði, efla samkeppni og styrkja innri markað Evrópska efnahagssvæðisins

Í yfirlýsingunni sem er undirrituð af Samtökum iðnaðarins, Dansk Industri, NHO, Svenskt Näringsliv og EK er lögð áhersla á mikilvægi opinberra innkaupa fyrir samkeppnishæfni, nýsköpun og hagvöxt í Evrópu. Á hverju ári verja opinberir aðilar innan EES gríðarlegum fjármunum til innkaupa og því skiptir miklu máli að regluverkið stuðli að virkri samkeppni á innri markaðinum og hagkvæmri nýtingu opinberra fjármuna.

Á myndinni er fulltrúi SI, Lilja Björk Guðmundsdóttir, yfirlögfræðingur SI, önnur frá hægri ásamt fulltrúum norrænu systursamtakanna þegar undirritunin fór fram í Kaupmannahöfn.

Ein reglugerð í stað þriggja tilskipana

Ein helsta áhersla samtakanna er að ein reglugerð komi í stað þriggja tilskipana um opinber innkaup sem mun stuðla að aukinni samræmingu á innri markaðnum. Mismunandi innleiðing og túlkun reglna milli ríkja, m.a. vegna gullhúðunar, hefur leitt til óþarfa flækjustigs, aukins kostnaðar og réttaróvissu fyrir fyrirtæki. Með samræmdari reglum má draga úr hindrunum fyrir fyrirtæki sem vilja taka þátt í opinberum útboðum þvert á landamæri og efla samkeppni.

Samtökin leggja áherslu á að tillaga um reglugerð en ekki tilskipanir haldi til að takmarka svigrúm til innlendra frávika sem geta grafið undan innri markaði fyrir opinber innkaup.

Stafvæðing styður einföldun ferla

Norrænu samtökin leggja jafnframt ríka áherslu á að nýtt regluverk styðji við aukna stafvæðingu opinberra innkaupa. Sameiginlegir stafrænir staðlar, samhæfð upplýsingakerfi og sú meginregla að fyrirtæki þurfi aðeins að skila upplýsingum einu sinni geti dregið verulega úr stjórnsýslubyrði og kostnaði. Gæta þarf að því að leggja ekki nýjar íþyngjandi kröfur um skýrslugerð ásamt því að tryggja að starfræn kerfi séu einföld og samhæfð.

Samtökin benda jafnframt á að við áframhaldandi mótun regluverksins þurfi að huga sérstaklega að ýmsum álitaefnum, m.a. varðandi innanhússinnkaup, rammasamninga, undirverktöku, hugverkaréttindi og skilvirk réttarúrræði.

Með sameiginlegri yfirlýsingu vilja norrænu atvinnulífssamtökin hvetja stofnanir ESB og aðildarríkin til að nýta endurskoðunina til raunverulegra umbóta sem draga úr regluverksbyrði, styrkja samkeppni og skapa fyrirtækjum betri skilyrði til vaxtar og verðmætasköpunar á innri markaði Evrópu.

Mikilvægt hagsmunamál fyrir íslenskt atvinnulíf

Endurskoðun regluverks um opinber innkaup hefur mikla þýðingu fyrir íslenskt atvinnulíf. Samræmdari reglur innan EES geta auðveldað íslenskum fyrirtækjum að sækja fram á erlenda markaði, aukið samkeppni og stuðlað að skilvirkari framkvæmd opinberra innkaupa hér á landi.

Löggjafartillagan er ekki síður mikilvæg í ljósi þess að kveðið er á um evrópskan uppruna (Made in Europe) og þurfa stjórnvöld og atvinnulíf að fylgjast náið með þróun tillögunnar og gæta þess að íslensk fyrirtæki njóti jafnræðis á við fyrirtæki innan ESB og að aðgangur þeirra að innri markaðnum verði tryggður.

Hér er hægt að nálgast skjalið.