Samtök atvinnulífsins, aðildarsamtök ásamt Viðskiptaráði Íslands hafa boðað til fjarfundar með Katrínu Jakobsdóttur, forsætisráðherra, þar sem stjórnendum aðildarfélaga gefst kostur á að ræða við ráðherrann um stöðu íslensks atvinnulífs og aðgerðir stjórnvalda. Fundurinn fer fram á morgun miðvikudaginn 29. apríl kl. 11.00.
Um er að ræða klukkustundarfund í gegnum fjarfundarforritið Zoom þar sem félagsmönnum gefst færi á að senda ráðherra spurningar, milliliðalaust, í gegnum spjallþráð forritsins.
Stjórnendur aðildarfélaga fá hlekk á fundinn sendan í tölvupósti frá SA.
Fjarfundur fyrir félagsmenn með forsætisráðherra
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, verður á fjarfundi á morgun sem ætlaður er félagsmönnum.

Tengt efni
Tækifæri til úrbóta sem kalla ekki á lagabreytingar eða aukin ríkisútgjöld
Rætt er við Sigurð Hannesson, framkvæmdastjóra SI, í Morgunblaðinu, Bítinu á Bylgjunni og Speglinum á Rás 1 um tækifæri í einföldun regluverks og stjórnsýslu.

Vel sóttur fundur SI um tækifæri í einföldun regluverks og stjórnsýslu
Tækifæri í einföldun regluverks og stjórnsýslu var til umræðu á vel sóttum fundi Samtaka iðnaðarins sem fór fram dag í Kaldalóni í Hörpu.

Tíu tillögur SI um einföldun regluverks og stjórnsýslu
