Flækjur eða fyrirsjáanleiki?
Samtök iðnaðarins boða til fundar um tækifæri í einföldun regluverks og stjórnsýslu fimmtudaginn 12. nóvember kl. 8.30-10 í Kaldalóni í Hörpu. Boðið er upp á létta morgunhressingu frá kl. 8.30 og dagskrá fundarins hefst kl. 9.00.
Skýrt og fyrirsjáanlegt starfsumhverfi er forsenda fjárfestinga, uppbyggingar og framfara. Fyrirtæki þurfa að geta treyst því að reglur séu skýrar, framkvæmd þeirra samræmd og ákvarðanir teknar með skilvirkum hætti.
Til mikils er að vinna. Með auknum fyrirsjáanleika, einfaldari ferlum og skilvirkari framkvæmd regluverks getum við styrkt samkeppnishæfni íslensks iðnaðar, hraðað uppbyggingu og skapað betri skilyrði til verðmætasköpunar.
Dagskrá kynnt síðar.