Beint í efni

Gagnaverin styrkja útflutning og skapa verðmæt störf

Rætt er við Ingólf Bender, aðalhagfræðing SI, í Speglinum á Rás 1 um starfsemi gagnavera á Íslandi.

Ingólfur Bender

Útflutningstekjur gagnavera og tengdrar starfsemi á Íslandi gætu numið um 72 milljörðum króna á þessu ári, samanborið við rúmlega 41 milljarð í fyrra. Jafnframt er áætlað að fjárfestingar gagnaveranna nemi 57 milljörðum króna á árinu, nær tvöfalt meira en í fyrra. Þetta kom fram í viðtali við Ingólf Bender, aðalhagfræðing SI, í Speglinum á RÚV. „Þannig að hin efnahagslegu áhrif starfseminnar eru annars vegar frá verulegum vexti í útflutningi og hins vegar frá verulegum vexti í fjárfestingum.“

Ingólfur bendir á að um 280 manns starfi hjá gagnaversfyrirtækjunum þremur á Íslandi en starfsemin skapi auk þess hátt í 1.300 önnur störf, meðal annars á sviði iðnaðar, tækni og hátækni. Þá skili starfsemin umtalsverðum verðmætum til samfélagsins í formi launa, þjónustukaupa og skattgreiðslna.

Ingólfur segir gagnaversiðnaðinn jafnframt gott dæmi um hvernig tekist hafi að fjölga stoðum íslensks efnahagslífs. Gagnaverin hafi sýnt mikla aðlögunarhæfni, meðal annars með því að færa starfsemi sína í auknum mæli yfir í þjónustu tengda gervigreind.

Á vef RÚV er hægt að hlusta á viðtalið við Ingólf í Speglinum og lesa frétt RÚV.

Spegillinn á Rás 1, 27. október 2026.

RÚV, 27. október 2026.