Beint í efni

Gervigreind í arkitektúr - tækifæri og áskoranir

Samtök arkitektastofa, SAMARK, býður til málstofu um gervigreind og áhrif hennar á störf arkitekta fimmtudaginn 15. október kl 12 í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35.

Gervigreind er í örri þróun og býður upp á fjölmörg tækifæri í hönnun og daglegu starfi arkitekta. Á málstofunni verður sjónum beint að því hvernig arkitektar geta nýtt gervigreind í starfi, hvaða möguleikar felast í tækninni og hvað þarf að hafa í huga – og varast – við notkun hennar.

Fyrirlesarar verða Hjörtur Sigurðsson frá Mynstru, STRUX teymið, Einar Hlér Einarsson frá Sei Studio og Arnhildur Pálmadóttir frá SAP arkitektum. Þau munu nálgast viðfangsefnið frá ólíkum sjónarhornum og miðla reynslu sinni og þekkingu á notkun gervigreindar í tengslum við arkitektúr og hönnun.

Málstofan er ætluð þeim sem vilja öðlast betri innsýn í hvernig gervigreind getur nýst sem öflugt verkfæri í starfi arkitekta, um leið og hugað er að þeim áskorunum og álitaefnum sem notkun tækninnar getur haft í för með sér.

Boðið verður upp á léttan hádegisverð fyrir þátttakendur.

Skráning fer fram hér.

Fundur um gervigreind og byggingarleyfisumsóknir