Beint í efni

Gervi­greind­in hefur jákvæð áhrif inn í hagkerfið hjá okkur

Þorsteinn Víglundsson, formaður SI, tók þátt í umræðum um áhrif gervigreindar á vinnumarkaðinn í Silfrinu á RÚV.

Við erum að sjá að gervigreindin er að hafa bein mjög jákvæð áhrif inn í hagkerfið hjá okkur. Við erum að sjá mikla fjárfestingu í gagnaverum. Við erum að sjá tækni- og hugverkagreinar hjá okkur sem að mér sjálfum hefði þótt nær óhugsandi fyrir tveimur, þremur áratugum að þetta væri orðin ein stærsta útflutningsatvinnugrein okkar í dag og hefði alla burði til þess að vaxa hvað hraðast hjá okkur á komandi árum og áratugum. Þetta segir Þorsteinn Víglundsson, formaður SI, sem var meðal viðmælenda í Silfrinu á RÚV þar sem rætt er um áhrif fjórðu iðnbyltingarinnar, gervigreindarbyltingarinnar, á íslenskum vinnumarkaði og hvernig best er að bregðast við þeim nýju kröfum sem gervigreindin gerir á vinnustöðum landsins. Þorsteinn segir jafnframt að tækni- og hugverkageirinn sé að jafna hjá okkur hagsveiflur. „Þetta er grein sem er ekki takmörkuð af vaxtargetu auðlindagreina eins og við höfum svo oft þurft að glíma við, þannig að það má segja að tækifærin fyrir okkur þarna eru algjörlega óteljandi. Auðvitað er margt sem við þurfum að ræða, það er margt sem við þurfum að bregðast við en heilt yfir horfi ég frekar jákvæðum augum á þessa þróun,“ segir Þorsteinn meðal annars í þættinum.

Á vef RÚV er hægt að horfa á þáttinn í heild sinni.

RÚV, 5. október 2026.

Þorsteinn Víglundsson formaður Samtaka iðnaðarins, Vilhjálmur Hilmarsson hagfræðingur Visku stéttarfélags, Sigríður Hagalín Björnsdóttir stjórnandi Silfursins, Ásta Ásgeirsdóttir deildarstjóri greiningardeildar Vinnumálastofnunar og Hjálmar Gíslason formaður starfshóps um nálgun stjórnvalda í málefnum gervigreindar.
Gervigreindin hefur jákvæð áhrif inn í hagkerfið hjá okkur - Samtök Iðnaðarins