Beint í efni

Hægt að tilnefna í norrænu sprota­verð­laun­in

Opið er fyrir tilefningar í norrænu sprotaverðlaunin fram til 15. júní.

Opnað fyrir atkvæðagreiðslu í Nordic Startup Awards

Hægt er að senda inn tilnefningar fyrir norrænu sprotaverðlaunin Nordic Startup Awards fram til 15. júní næstkomandi. Hægt er að senda inn tilefningu fyrir persónu eða fyrirtæki í 13 flokkum.

Það er Nýsköpunarmiðstöð Íslands sem er meðal bakhjarla í keppninni. Sigurvegarar í keppninni hér á landi taka þátt í norrænu keppninni í Kaupmannahöfn í október 2018 og eiga þá möguleika á að komast áfram í Global Startup Awards.

Hér er hægt að senda inn tilnefningar.