Beint í efni

Halda þarf sérstöðu Íslands á lofti við mótun um­hverf­is­reglu­verks í Evrópu

Lilja Björk Guðmundsdóttir, yfirlögfræðingur SI, stýrði umræðum á Umhverfisdegi atvinnulífsins um hagsmunagæslu orku- og umhverfismála í Brussel.

Umhverfisdagur atvinnulífsins

Frá Íslandi til Brussel: Sérstaða, hagsmunir og áhrif var yfirskrift pallborðsumræðu á Umhverfisdegi atvinnulífsins sem Lilja Björk Guðmundsdóttir, yfirlögfræðingur SI, stýrði með þátttöku Gunnars Þórs Péturssonar, forseta lagadeildar Háskólans í Reykjavík, Rögnu Árnadóttur, forstjóra Landsnets, og Álfheiði Ágústsdóttur, forstjóra Travel Connect og fyrrum forstjóra Elkem Ísland. 

Í umræðunum var litið til mikilvægis EES-samningsins og hvernig gæta megi hagsmuna Íslands með skilvirkari hætti þegar evrópskt regluverk er mótað á sviði umhverfis-, orku-, og loftslagsmála. Þar kom fram að ný könnun SA og aðildarsamtaka sýni að íslenskum fyrirtækjum sé ofarlega í huga að sérstöðu Íslands sé haldið á lofti við mótun umhverfisregluverks í Evrópu. 

Áhrif á réttum tíma 

Gunnar Þór fjallaði um hvernig Íslandi hefur gengið að hafa áhrif á evrópskt regluverk og að stíga þyrfti fyrr inn í löggjafarferlið. Hann ræddi meðal annars um muninn á því að hafa áhrif á löggjafartillögur á mótunarstigi og því að reyna að fá undanþágur eftir á. Þá nefndi hann áskoranir sem Ísland stendur frammi fyrir í dag vegna breyttrar myndar í alþjóðamálum. Hann sagði það kalla á breytta áherslu í hagsmunagæslu þar sem íslensk stjórnvöld og atvinnulíf þyrftu að einnig að fylgjast með málum sem falla undir viðskiptastefnu ESB í ljósi aukinnar verndarhyggju.   

Orkuskiptin sem styrkleiki 

Ragna fjallaði um sérstöðu Íslands í orkumálum þar sem endurnýjanleg orka og orkuskipti setja Ísland í fremstu röð. Hún ræddi hvort og hvernig nýta megi þessa sérstöðu til að hafa meiri áhrif á mótun evrópsks regluverks í umhverfis- og orkumálum. Einnig ræddi hún hvað stjórnvöld og atvinnulíf geta gert til að hagsmunagæslan verði skilvirkari og framsýnni. 

Lærdómur af kísiljárnsmálinu 

Álfheiður byggði á reynslu sinni af rekstri fyrirtækis sem fellur undir umfangsmikið evrópskt regluverk. Hún ræddi sérstöðu Íslands sem forskot sem eflir samkeppnishæfni og lagði áherslu á að taka þyrfti tillit til þessa og vera í virku samtali, bæði atvinnulíf og stjórnvöld. Hún fjallaði einnig um þann lærdóm sem draga megi af verndarráðstöfunum ESB vegna kísiljárns en tæpt ár er síðan verndarráðstafanirnar voru lagðar á. Hún sagði að þrátt fyrir smæð landsins hafi hagsmunagæslan verið afar áhrifarík þar sem stjórnvöld og atvinnulíf lögðust á eitt.  

Umhverfisdagur atvinnulífsins
Lilja Björk Guðmundsdóttir, yfirlögfræðingur SI, Gunnar Þór Pétursson, forseti lagadeildar Háskólans í Reykjavík, Álfheiður Ágústsdóttir, forstjóri Travel Connect og fyrrum forstjóri Elkem Ísland, og Ragna Árnadóttir, forstjóri Landsnets,

Lilja Björk Guðmundsdóttir
Lilja Björk Guðmundsdóttir, yfirlögfræðingur SI.
Umhverfisdagur atvinnulífsins
Umhverfisdagur atvinnulífsins
Umhverfisdagur atvinnulífsins