Iðan fræðslusetur hefur sett nýtt hlaðvarp í loftið þar sem fjallað er um bygginga- og mannvirkjagreinar undir yfirskriftinni Vandað til verka. Stjórnandi hlaðvarpsins er Bergþór Ingi Sigurðsson, húsasmiður, byggingatæknifræðingur og verkefnastjóri hjá JÁVERK. Í hlaðvarpsþáttunum er fjallað um byggingariðnaðinn frá ýmsum hliðum og koma viðmælendur úr öllum greinum hans. Til að byrja með er um að ræða 10 þátta seríu og eru tveir þættir komnir í loftið.
Hér eru hlekkir á fyrstu tvo þættina en þá verður hægt að nálgast á idan.is og helstu hlaðvarpsveitum:
Þáttur 1: Sylgja Dögg: Raki og mygla
Þáttur 2: Lagnir veikasti hlekkurinn í viðhaldi húsa
Myndin hér fyrir ofan er tekin í útgáfuboði Iðunnar þegar hlaðvarpinu var ýtt úr vör. Þáttastjórnandinn Bergþór Ingi Sigurðsson er þriðji frá hægri.



