Landbúnaður í heimi breytinga
Öryggi, verðmætasköpun og framtíðartækifæri
Samtök fyrirtækja í landbúnaði og Bændasamtök Íslands standa fyrir málþingi fimmtudaginn 8. október kl. 15-17 í Sjálfstæðissalnum Parliament Hotel. Á málþinginu verður fjallað um öryggi, verðmætasköpun og framtíðartækifæri í landbúnaði.
Margrét Ágústa Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands, stýrir fundinum og Lilja Björk Guðmundsdóttir, yfirlögfræðingur SI, stýrir umræðum.
- Setning - Trausti Hjálmarsson, formaður Bændasamtaka Íslands
- Ávarp - Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra Íslands
- Matvælaframleiðsla á Norðurslóðum - Jóhannes Sveinbjörnsson, dósent við Landbúnaðarháskóla Íslands
- Landbúnaður og fæðuöryggi í þjóðaröryggi Íslands - Helgi Valberg Jensson, ritari þjóðaröryggisráðs
- Matvælamarkaður á umbrotatímum - Margrét Gísladóttir, framkvæmdastjóri SAFL
- Óvissa í alþjóðamálum: áskoranir og tækifæri fyrir íslenskan landbúnað - Ingólfur Friðriksson, skrifstofustjóri viðskiptaskrifstofu utanríkisráðuneytisins
Pallborðsumræður
- Björgvin Þór Björgvinsson, viðskiptastjóri sjávarafurða og matvæla hjá Íslandsstofu
- Sigríður Snævarr, sendiherra til margra ára
- Þóra Arnórsdóttir, forstöðumaður samskipta og upplýsingamiðlunar hjá Landsvirkjun
- Þórir Erlingsson, forseti Klúbbs matreiðslumeistara
