Beint í efni

Ný raf­magns­ör­ygg­is­gátt HMS kynnt í samstarfi við rafverktaka

Ný rafmagnsöryggisgátt Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) var kynnt á fundi í gær þar sem dregið var fram farsælt samstarf HMS og Samtaka rafverktaka (Sart) við undirbúning og hönnun nýju gáttarinnar.

Kristján Daníel Sigurbergsson, framkvæmdastjóri Sart, flutti ávarp við upphaf fundarins þar sem hann fagnaði nýju gáttinni og rakti aðdraganda hennar. Hann benti á að eldri rafmagnsöryggisgátt hefði á sínum tíma markað tímamót, en með tímanum hefði orðið ljóst að hún héldi ekki í við tækniþróunina. Upp úr miðju ári 2024 sendu Samtök iðnaðarins, fyrir hönd Sart, og Samorka formlegt erindi til HMS þar sem lýst var áhyggjum af stöðu mála og óskað eftir samræmdri lausn. Í framhaldinu hófst náið samráð milli aðila, þar sem félagsmenn Sart tóku virkan þátt í þarfagreiningu og lögðu fram praktískar ábendingar af vettvangi.

Kristján Daníel Sigurbergsson, framkvæmdastjóri Sart: „Þetta verkefni sýnir í hnotskurn hversu miklu má áorka þegar stjórnvöld, stofnanir og fagfélög í atvinnulífinu stilla saman strengi. Afraksturinn er nútímaleg, samræmd gátt sem einfaldar daglegt starf rafverktaka, eykur gæði og öryggi gagna fyrir dreifiveiturnar og veitir HMS þá heildaryfirsýn sem nauðsynleg er fyrir öflugt eftirlit.“

Valgerður Sigurðardóttir frá HMS sagði frá vinnuferlinu við gerð nýju gáttarinnar og hvernig unnið var úr ábendingum og þörfum notenda við þróunina. Að því loknu tók Óskar Frank Guðmundsson sérfræðingur í rafmagnsöryggi hjá HMS við, kynnti virkni gáttarinnar ítarlega og svaraði spurningum fundarmanna um nýja kerfið og notkun þess í starfi.

Sart hvetur alla félagsmenn sína til að taka nýju rafmagnsöryggisgáttina í notkun og halda áfram að koma með ábendingar um þróun hennar.