Nýtt umbúðaregluverk Evrópusambandsins, PPWR, mun hafa víðtæk áhrif á íslenskt atvinnulíf og neysluvenjur. Þetta kom fram í erindi Sigurðar Helga Birgissonar, viðskiptastjóra hjá SI, á Umhverfisdegi atvinnulífsins. Í máli hans kom fram mikilvægi þess að innleiðingin tæki mið af íslenskum aðstæðum og að kostnaður við breytingarnar stæði í eðlilegu hlutfalli við umhverfisávinning.
Reglurnar ná til hönnunar, efnisvals, upplýsingagjafar og meðhöndlunar umbúða og fela meðal annars í sér auknar kröfur um endurnotkun. Sigurður Helgi benti á að áhrifamat á fjölnotakerfi fyrir drykkjarumbúðir hér á landi gæfi tilefni til verulegra efasemda um hagkvæmni þess. Kostnaður væri talinn óforsvaranlegur jafnvel miðað við jákvæðustu sviðsmynd,í ljósi þess að umhverfislegur ávinningur virðist takmarkaður eða enginn. Því þyrfti að meta raunverulegan ávinning ólíkra lausna áður en ráðist væri í umfangsmiklar fjárfestingar.
Í pallborðsumræðum var fjallað um stöðu umbúðamála hér á landi og m.a. varpað ljósi á reynslu verslunarinnar af tilraunum með umbúðalausar lausnir. Áréttað var að umbúðir þjónuðu mikilvægum tilgangi við að vernda vörur, tryggja öryggi þeirra og draga úr matarsóun. Þær væru því ekki aðeins óþarfa úrgangur þó vissulega væri verðugt og virðingarvert verkefni að draga úr umbúðaúrgangi eins og hægt væri.
Einnig var rætt að skoða þyrfti tölfræði um skil og endurvinnslu á Íslandi til að koma í veg fyrir tvöfalt skilakerfi sem kunni að draga úr árangri sem þegar hafi verið náð. Tryggja þyrfti rétta og samanburðarhæfa mynd af árangrinum og kanna hvort skilyrði fyrir tímabundnum undanþágum frá tilteknum endurnotkunarkröfum gætu verið uppfyllt.
Fram kom að viðræður um aðlögun innan EES kunni að verða erfiðar þótt sérstaða Íslands sé töluverð. Vissar áskoranir varðandi útflutning ferskvöru á markaði ESB væru uppi og ljóst að umbúðareglugerðin geri ekki ráð fyrir þeim umbúðalausnum sem sjávarútvegur hafi treyst á. Þótt enn sé óljóst hvenær regluverkið verði tekið upp í EES-samninginn þurfi fyrirtæki að vera undirbúin.
Umræðurnar voru jákvæðar og leiddu í ljós mikinn vilja stjórnvalda til að vinna náið með atvinnulífinu við greiningu og innleiðingu reglugerðarinnar hér á landi og standa vörð um hagsmuni og sérstöðu Íslands. Sameiginlegt verkefni væri að finna skynsamlegar leiðir við innleiðingu sem skiluðu umhverfisárangri án þess að leggja óhóflegan kostnað og reglubyrði á fyrirtæki.
Mynd/BIG



