Opið samtal um íslenskuna í Iðnó
Staða íslenskunnar meðal fólks með annað móðurmál verður rædd á opnum viðburði í Iðnó fimmtudaginn 19. nóvember kl. 16.30–18.30. Forseti Íslands, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra og fólk úr atvinnulífinu taka þátt.
Menntatæknifyrirtækið Bara tala, Gefum íslensku séns og Brim standa að viðburðinum. Fjöldi fólks með annað móðurmál en íslensku starfar á íslenskum vinnumarkaði. Vinnustaðir gegna því lykilhlutverki í því að gefa fólki tækifæri til að læra málið og nota það.
Bara tala er aðili að Samtökum íslenskra menntatæknifyrirtækja, IEI, innan Samtaka iðnaðarins. Fyrirtækið þróaði lausn sína í íslenskukennslu fyrst út frá þörfum atvinnulífsins en lausnina má einnig nýta til inngildandi íslenskukennslu víðar í samfélaginu. Þetta er dæmi um hvernig íslensk menntatækni getur stutt við að íslenskan verði áfram tungumál allra sem búa hér og starfa.
Á viðburðinum verður leitað svara við spurningum eins og þessum:
- Hvernig sköpum við umhverfi þar sem fólk fær raunveruleg tækifæri til að læra og nota íslensku, svo að hún verði áfram nothæft samskiptamál á Íslandi?
- Hvaða ábyrgð bera atvinnurekendur, stjórnvöld og við sjálf sem íslenskumælandi samfélag?
- Hvernig getum við betur stutt við þau sem eru að læra tungumálið?
Gestirnir nálgast málefnið hver frá sínu sjónarhorni. Saman eiga þeir opið samtal um stöðu íslenskunnar og hvert við viljum stefna.
Dagskrá
- Samtal Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, og Pálmi Hafþór Ingólfsson, fræðslustjóri Brims, ræða stöðu og framtíð íslenskunnar.
- Erindi Valerio Gargiulo, rithöfundur og þýðandi, flytur stutt erindi sem byggir á grein hans „Af hverju talarðu ensku við mig þegar ég tala íslensku?“ og Helga Fjóla Sæmundsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðssviðs Hornsteins, fjallar um íslenskukennslu á karllægum vinnustað.
- Pallborðsumræður Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir, sérfræðingur í mennta- og mannauðsmálum hjá Samtökum iðnaðarins, stýrir umræðum. Í pallborði sitja: Ásta Sigríður Fjeldsted, forstjóri Festi, Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims, Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, og Peter Weiss, stjórnarformaður Gefum íslensku séns.
- Tónlist Að loknum pallborðsumræðum tekur Jökull Júlíusson úr KALEO lagið með Doctor Victori.
Húsið opnar kl. 16.30 og dagskráin hefst kl. 16,45. Gestir eru hvattir til að mæta tímanlega.
Hér er hægt að skrá sig.
