Persónuvernd í tækni- og hugverkaiðnaði
Um viðburðinn
Miðvikudagur 11. nóvember kl. 13-14 í Húsi atvinnulífsins
Samtök iðnaðarins og Persónuvernd standa fyrir fundi um persónuvernd í tækni- og hugverkaiðnaði miðvikudaginn 11. nóvember kl. 13-14 í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35.
Á fundinum verður farið almennt yfir hlutverk Persónuverndar, helstu áskoranir fyrirtækja og hvernig stofnunin getur stutt betur við starfsemi og þróun nýrra lausna.
Félagsmenn SI sem vilja deila reynslu sinni af samskiptum við Persónuvernd og þeim áhrifum sem persónuverndarlöggjöfin og framkvæmd hennar hefur haft á starfsemi sinna fyrirtækja geta haft samband við eftirtalda viðskiptastjóra hjá SI:
- Freyr Friðfinnsson, freyr@si.is
- Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir, hulda@si.is.
Hér er hægt að skrá sig á fundinn.
