Samtök iðnaðarins hafa sent umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis umsögn um frumvarp til laga um aðlögunarkerfi við landamæri vegna kolefnis (CBAM). Samtökin leggja áherslu á að skuldbindingar Íslands samkvæmt EES-samningnum séu virtar og að aðgangur að innri markaðnum sé tryggður.
CBAM leggur kolefnisgjöld á tilteknar vörur sem fluttar eru inn frá ríkjum utan EES, m.a. ál, stál, sement, járn og áburð. Á sama tíma verður á grundvelli ETS-kerfisins hætt í skrefum að úthluta fríum losunarheimildum til staðbundins iðnaðar sem fellur undir CBAM. CBAM er ætlað að draga úr hættu á kolefnisleka og tryggja sambærilegan kolefniskostnað á innfluttum vörum og vörum sem framleiddar eru innan Evrópska efnahagssvæðisins.
Í umsögninni vara samtökin við því að útfösun fríu losunarheimildanna muni valda hækkunum á CBAM-vörum sem framleiddar eru innan EES óháð innleiðingu á CBAM. Þá lýsa samtökin yfir áhyggjum af áhrifum á vörur með hátt kolefnisspor sem fluttar eru inn frá ríkjum utan EES-svæðisins sem og notkun losunarstuðla ESB (default values) um kolefnisinnihald sem fela í sér álag á CBAM kolefnisgjaldið. Slíkar hækkanir geti haft neikvæð áhrif á verðbólgu og vísitölu byggingarkostnaðar.
Í umsögninni leggja Samtök iðnaðarins m.a. áherslu á eftirfarandi:
- Stjórnvöld verði virk í hagsmunagæslu sinni vegna ETS-kerfisins og CBAM og styðji við hægari útfösun frírra losunarheimilda sem hefur áhrif á kostnaðarhækkanir.
- Óbein losun vegna raforkunotkunar verði tekin með í CBAM svo íslensk álver njóti þess að nota endurnýjanlega orku.
- Fylgst verði náið með verðhækkunum á innfluttum vörum og stjórnvöld verði reiðubúin með mótvægisaðgerðir.
- Tekjum af ETS og CBAM verði varið til loftslagstengdra verkefna, meðal annars til að styðja fyrirtæki við að taka upp vörur með lægra kolefnisspor og þróa tæknilausnir sem draga úr losun gróðurhúsalofttegunda.
- Samtökin leggja áherslu á að kerfið þjóni markmiðum sínum án þess að draga úr samkeppnishæfni íslensks iðnaðar.
- Umhverfis- og orkustofnun sinni leiðbeiningarskyldu sinni og gjaldtöku verði stillt í hóf.
Hér er hægt að nálgast umsögnina í heild sinni.


