Samtök iðnaðarins hafa skilað inn umsögn um frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2027. Samtökin fagna því að í frumvarpinu er gert ráð fyrir afgangi á heildarjöfnuði ríkissjóðs árið 2027, en samtökin bentu á það í umsögn sinni um fjárlög ársins 2026 að vel hefði verið hægt að skila fjárlögum með afgangi. Samtökin fagna jafnframt stofnun innviðafélagsins Göng og brú ohf. og því að fallið hefur verið frá frestun framkvæmda við verkmenntaskóla.
SI leggjast hins vegar gegn þeirri leið sem valin er í frumvarpinu til að skila afgangi. SI mótmæla fyrirhuguðum skatta- og gjaldahækkunum sem geta dregið úr fjárfestingu og samkeppnishæfni. Samtökin leggjast einnig gegn niðurskurði í útgjöldum til innviða og menntunar sem kann að veikja framleiðslugetu til lengri tíma. Stefna ríkisfjármála þarf að styðja við bæði stöðugleika og verðmætasköpun. Að mati samtakanna er of mikið byggt á hækkun skatta og gjalda og aðhaldi í útgjöldum til innviða og menntunar.
SI mótmæla harðlega áformum um að hækka skatta á uppbyggingu húsnæðis með því að lækka endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna vinnu manna á verkstað úr 35% í 20% og krefjast þess að fallið verði frá þeim. SI telja að aðrar hækkanir skatta og gjalda í frumvarpinu, hækkun kílómetragjalds, 5,2% verðlagsuppfærsla krónutölugjalda og hækkun sérstaks skatts á fjármálafyrirtæki, dragi úr samkeppnishæfni og fjárfestingu og vinni gegn aukinni framleiðni og verðmætasköpun. SI leggjast gegn þessum skatta- og gjaldahækkunum.
Í umsögninni kemur fram að vöxtur í framleiðni og samkeppnishæfni fyrirtækja sé forsenda sjálfbærs hagvaxtar. Varanlegur bati í afkomu ríkisins krefst þess jafnframt að útgjöldum sé forgangsraðað og skilvirkni í rekstri bætt. SI fagna áherslu stjórnvalda á einföldun regluverks og leggja til að stjórnvöld dragi úr óþarfa stjórnsýslukostnaði, fjárfesti í innviðum, menntun og nýsköpun. Slíkar áherslubreytingar þurfa að rúmast innan útgjaldaramma sem tryggir fyrirhugaðan afgang.
Tillögur SI að breytingum
SI vilja að fyrirhugaður afgangur haldist en að samsetning tekna og útgjalda styðji betur við framleiðni og samkeppnishæfni. Samtökin leggja til að:
• Breyta forgangsröðun þannig að ríkisfjármálin styðji betur við samkeppnishæfni, framboðshlið hagkerfisins, framleiðni og verðmætasköpun og skila þannig sjálfbærum ríkisrekstri og jöfnuði í ríkisfjármálum.
• Falla frá lækkun endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna vinnu á verkstað. Halda hlutfallinu að minnsta kosti í 35% sem styður íbúðaframboð og löglega atvinnustarfsemi.
• Falla frá hækkun skatta og gjalda sem skerða samkeppnishæfni atvinnulífsins líkt og hækkun kílómetragjalds, sérstaks skatts á fjármálafyrirtæki og verðlagsuppfærslu krónutölugjalda umfram 2,5%.
• Tryggja fyrirsjáanlegt kerfi skattahvata vegna rannsókna og þróunar, staðfesta þak og hlutföll og skýra lægri nýtingu.
• Tryggja fjármögnun þeirra aðgerða atvinnustefnunnar sem snúa að menntun, innviðum, nýsköpun, starfsumhverfi og orkumálum með skýrri forgangsröðun útgjalda.
Hér er hægt að nálgast umsögnina í heild sinni.



