Beint í efni

Skatt­lagn­ing aukin í þungri stöðu á ný­bygg­inga­mark­aði

Gylfi Gíslason framkvæmdastjóri Jáverks segir í samtali við Rúnar Pálmason í Speglinum á Rás 1 stöðuna á nýbyggingamarkaði vera þunga og það sé ekkert endilega bjart fram undan. Verðbólga, háir vextir og lánþegaskilyrði Seðlabankans ofan á það hafi valdið sölutregðu. Í máli Gylfa kemur fram að hjá þeim félögum sem hafi það að sinni meginstarfsemi að byggja íbúðir sé mikið fé bundið í óseldum íbúðum og því fari ný verkefni ekki af stað, mikilvægasta verkefnið sé að ná niður verðbólgu og þar með vöxtum. Þá hafi skattlagning á þennan geira farið sífellt vaxandi. Sveitarfélög hafi vaknað upp við að þau hafi gengið of langt við að leggja skatta á uppbyggingu íbúðarhúsnæðis. „En þá kemur ríkið og bætir í,“ segir Gylfi og bendir á að í fjárlagafrumvarpinu sé gert ráð fyrir skattahækkunum, þ.e. að endurgreiðsla á virðisaukaskatti vegna vinnu á verkstað verði lækkuð. Það hækki kostnað við 100 fermetra íbúð að jafnaði um 1,5 milljónir. Endurgreiðslan hafi líka verið lækkuð undir lok síðasta kjörtímabils og við það hafi kostnaður hækkað um 2,5-3 milljónir. „Þetta er ekki besti tíminn, hefði maður haldið, til að auka skattlagningu á íbúðarhúsnæði.“

Mistök í skipulagsmálum

Einnig kemur fram í máli Gylfa að það sé alveg ljóst að skipulag sveitarfélaga taki hvorki nægilegt tillit til búsetuvilja fólks né til breytinga á aldurssamsetningu þjóðarinnar. Þá hafi kröfur frá sveitarfélögum um meðalstærð íbúða í fjölbýlishúsum leitt til þess að of lítið hafi verið byggt af litlum íbúðum. Of mikið sé byggt af stórum íbúðum sem ekki seljist. Hann hafi reynt að fá leyfi til að byggja fleiri litlar íbúðir en því verið hafnað. Í viðtalinu kemur fram að síðustu ár hafi verið eitt mesta uppbyggingartímabil íbúðarhúsnæðis í sögunni. Ljóst hefði verið að það myndi hægja á en nú sé verið að ýkja sveifluna. „Og ég held að við höfum gert miklu meiri mistök í skipulagsmálum en áður.“

RÚV, 30. september 2026.