Beint í efni

Skrifað undir samning um stækkun Verk­mennta­skólans á Akureyri

Skrifað var undir samning ríkisins og sveitarfélaga við Eyjafjörð um stækkun á húsnæði VMA.

Skrifað undir samning um stækkun Verkmenntaskólans á Akureyri

Skrifað var undir samning ríkisins og sveitarfélaga við Eyjafjörð um stækkun á húsnæði Verkmenntaskólans á Akureyri, VMA, í dag. Undirritunin fór fram í Gryfjunni í verkmenntaskólanum. Meðal viðstaddra voru Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, auk fulltrúa sveitarfélaganna við Eyjafjörð og fulltrúa aðildarfyrirtækja SI á Norðurlandi.

Góður rómur var gerður að þessu framfaraskrefi sem stigið var með undirrituninni og mikil ánægja með þau áform sem í samningnum felast.

Að athöfn lokinni var boðið upp á að ganga um húsnæði skólans en í ár fagnar VMA 40 ára afmæli skólans.




Skrifað undir samning um stækkun Verkmenntaskólans á Akureyri - Samtök Iðnaðarins