Beint í efni

Skýr merki um samdrátt í bygg­ing­ar­iðn­aði

Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur SI, segir í Morgunblaðinu að samdrátturinn í byggingariðnaði sé nú klárlega mestur í íbúðaruppbyggingu.

Ingólfur Bender

Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur Samtaka iðnaðarins, SI, segir í samtali við Morgunblaðið að þegar horft sé til byggingariðnaðar sé klár niðursveifla í gangi, það sjáist bæði t.d. í tölum um fjölda starfandi og atvinnulausra í greininni og báðar sýni merki um niðursveiflu. „Fjöldi starfandi í byggingariðnaði hefur minnkað um 2,2% eða 457 milli ára. Heildarfjöldi atvinnulausra í greininni var 1.106 í ágúst og jókst um 260 milli ára eða 31%.Velta í greininni er til að mynda að dragast saman um 2% milli ára á fyrri helmingi þessa árs. Magn innflutts byggingarefnis á fyrstu sjö mánuðum ársins hefur dregist saman um fjórðung milli ára. Það er skýrt merki um samdrátt.“ Hann segir jafnframt að greinin sé stór og vinni bæði við íbúðabyggingar en einnig við uppbyggingu atvinnuhúsnæðis og innviða fyrir hið opinbera. „Þessir þrír þættir í starfsemi greinarinnar eru ekki alltaf að þróast eins, en samdrátturinn er nú klárlega mestur í íbúðarhúsnæðisuppbyggingu.“

Ríkisstjórnin hækkar skattlagningu á greinina

Þá kemur fram að Ingólfur bendi á að SI hafi gagnrýnt forgangsröðun í ríkisfjármálum í frumvarpi til fjárlaga. „Ríkisstjórnin er að hækka skattlagningu á greinina þegar hún er í samdrætti. Það er verið að lækka endurgreiðslu á virðisaukaskatti vinnu manna á verkstað sem er ígildi skattahækkunar. Endurgreiðslan fer úr 35% í 20%. Þetta eru verulegir fjármunir fyrir greinina, eða um 3,6 milljarðar, og eykur enn á skattpíningu hennar. Þetta eru viðbótar 1,3 milljónir á hverja 100 fm íbúð. Sveitarfélög hafa sum þegar komið til móts við greinina með því að lækka álögur á íbúðauppbyggingu en sú góða vinna verður að engu ef áform ríkisins um hækkun skatta ganga eftir. “

Morgunblaðið, 2. október 2026.