Beint í efni

Snyrti­fræð­ingar fjölmenntu á fyrsta félagsfund vetrarins

FÍS

Félag íslenskra snyrtifræðinga, FÍS, hélt fyrsta fund vetrarins miðvikudaginn 28. október í Húsi atvinnulífsins og á Teams. Fjölmennt var á fundinum þar sem meðal annars var efnt til vinnustofu þar sem félagsmenn völdu fimm hagsmunamál sem snúa að fagstéttinni, réttindamálum og náminu.  

Fundurinn hófst á kynningu á samkeppnisréttarstefnu SI sem gildir um allt samstarf á vettvangi samtakanna og bannar að rætt sé um eða miðlað viðkvæmum upplýsingum, svo sem um verð, kostnað, viðskiptavini, markaðshlutdeild eða viðskiptaáætlanir.

Á fundinum var rætt um ólöglega starfsemi í greininni og hvernig efla megi eftirlit strax á frumstigi, þannig að aðeins einstaklingur með meistararéttindi geti sótt um að hefja rekstur hjá RSK og heilbrigðiseftirliti. Þá var farið yfir áskoranir í menntun og útgefin leyfi til að starfa innan greinarinnar án þess að meistararéttindi liggi að baki, eins og lög gera ráð fyrir. Í umræðum á fundinum kom fram að nú sem aldrei fyrr væri nauðsynlegt að félagsmenn standi saman.

Á fundinum kom fram að áformað væri að halda konukvöld FÍS 4. nóvember og að boð hafi verið sent á alla félagsmenn. Einnig kom fram að FÍS hvetji alla löggilta snyrtifræðinga og eigendur snyrtistofa til að ganga í félagið og taka þannig þátt í að efla fagið, verja lögverndina og vinna að áherslumálum vetrarins.

Nánari upplýsingar um aðild veitir Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir, viðskiptastjóri hjá SI, á netfanginu hulda@si.is.

FÍS
FÍS
FÍS