Beint í efni

Styrkja­um­hverfi mann­virkja­geir­ans

Burður og Rannís standa að sameiginlegum viðburði um styrkjaumhverfi mannvirkjageirans mánudaginn 16. nóvember kl. 13-15.30 í Borgartúni 21. Markmiðið er að gera styrkjaumhverfið aðgengilegra og gefa þátttakendum betri yfirsýn yfir þau tækifæri sem standa til boða, bæði hér á landi og í Evrópu.

Hér er hægt að skrá sig.

Farið verður yfir Ask mannvirkjarannsóknarsjóð, áherslur hans og umsóknarferli, auk þess sem kynnt verða verkefni sem hlotið hafa styrk úr sjóðnum. Þá verður fjallað um fjölbreytt innlend og evrópsk styrktækifæri, meðal annars Horizon Europe, LIFE, Uppbyggingarsjóð EES, Eurostars, Tækniþróunarsjóð og Rannsóknasjóð.

Að kynningum loknum verður hægt að fá ráðgjöf, ræða verkefnahugmyndir og fá aðstoð við að greina hvaða styrktækifæri gætu hentað hverju verkefni. Viðburðurinn er hugsaður bæði fyrir þau sem eru með verkefni eða hugmynd í farvatninu og þau sem vilja einfaldlega kynnast betur þeim möguleikum sem standa til boða. Að kynningum loknum verður hægt að fá ráðgjöf, ræða verkefnahugmyndir og fá aðstoð við að greina hvaða styrktækifæri gætu hentað hverju verkefni.

Dagskrá

13:00 Húsið opnar 

13:10–13:15 Yfirlit yfir styrkjaumhverfið í mannvirkjageiranum

13:15–13:25 Askur mannvirkjarannsóknarsjóður

13:25–13:35 Verkefnakynningar úr Aski

13:35–13:55 Kaffi

13:55–14:50 Rannís: Evrópustyrkir og innlendir styrkir

14:50–14:55 Grænar leiðir - Þjónusta við græna umsækjendur

14:55–15:00 Spurningar

15:00–15:30 Vinnustofa, ráðgjöf og leiðsögn fyrir umsækjendur

Styrkjaumhverfi mannvirkjageirans - Samtök Iðnaðarins