Klæðskera- og kjólameistarafélagið stóð fyrir afhendingu á sveinsbréfum í klæðskurði og kjólasaumi laugardaginn 19. september í Húsi atvinnulífsins. Sex sveinar luku sveinsprófi í kjólasaumi og fengu fimm þeirra sveinsbréf sín afhent við athöfnina. Einn sveinanna, sem búsettur er í Vestmannaeyjum, átti ekki heimangengt. Sveinar í klæðskurði sem lokið höfðu sveinsprófi fengu jafnframt sveinsbréf sín afhent.
Sérstaka athygli vakti að fjórir einstaklingar tóku við sveinsbréfum í báðum iðngreinum, kjólasaumi og klæðskurði, sama dag. Það er óvenjulegt þar sem nemendur velja að jafnaði að ljúka lokaönn í annarri greininni í einu. Fjórmenningarnir tóku hins vegar lokaönnina í báðum iðngreinum samtímis og luku því sveinsprófi í þeim báðum.
Afhending sveinsbréfa markar mikilvæg tímamót í starfsferli iðnaðarmanna og staðfestir þá fagþekkingu og færni sem þeir hafa öðlast með námi og starfsþjálfun.
Rótgróið fag með fjölbreytta þjónustu
Fataiðn er löggilt iðngrein og bjóða meistarar í greininni upp á fjölbreytta þjónustu við hönnun og framleiðslu fatnaðar. Þar má meðal annars nefna fatnað til daglegra nota, samkvæmisfatnað, yfirhafnir og vinnufatnað sem sniðinn er að þörfum hvers og eins. Klæðskera- og kjólameistarafélagið hefur það að markmiði að efla samvinnu félagsmanna, stuðla að símenntun í greininni og styrkja árangur félagsmanna á markaði.




