Samtök iðnaðarins og Persónuvernd undirbúa þrjá fundi fyrir fyrirtæki í tækni- og hugverkaiðnaði á næstu mánuðum. Markmiðið er að efla samtal um persónuvernd, nýsköpun og góða starfshætti við þróun og notkun nýrra tæknilausna. Myndin er tekin þegar fulltrúar SI og Persónuverndar hittust á dögunum þar sem rætt var hvernig styðja megi við nýsköpun og þróun tæknilausna samhliða því að tryggja persónuvernd og réttindi notenda.
Opið samtal og hagnýt fræðsla
Fundirnir þrír eiga að skapa vettvang fyrir opið samtal milli fyrirtækja og Persónuverndar, efla sameiginlegan skilning og stuðla að miðlun góðra starfshátta.
Áhersla verður lögð á hagnýta fræðslu og raunveruleg viðfangsefni fyrirtækja, meðal annars varðandi framkvæmd persónuverndarreglna (GDPR). Með auknu samtali og þekkingarmiðlun er stefnt að því að auka þekkingu fyrirtækja á persónuvernd og stuðla að auknum fyrirsjáanleika í framkvæmd.
Fyrsti fundurinn í nóvember
Fyrsti fundurinn er fyrirhugaður í nóvember. Í framhaldinu er stefnt að fræðslufundum og/eða vinnustofum þar sem fyrirtækjum gefst kostur á að koma spurningum sínum og reynslu á framfæri.
Nánari upplýsingar um tímasetningar, dagskrá og þátttöku á fundunum þremur verða kynntar síðar.
Með fundarröðinni vilja SI og Persónuvernd stuðla að skýrara og fyrirsjáanlegra umhverfi fyrir fyrirtæki í tækni- og hugverkaiðnaði, þar sem nýsköpun og ábyrg meðferð persónuupplýsinga geta farið saman.



