Beint í efni

Út­flutn­ing­ur iðnaðarvara meira en helmingur gjald­eyr­is­tekna

Í nýjum tölum Hagstofunnar kemur fram að útflutningur iðnaðarvara var meira en helmingur gjaldeyristekna á síðasta ári.

Útflutningur iðnaðarvara meira en helmingur gjaldeyristekna

Í nýjum tölum Hagstofunnar kemur fram að útflutningur iðnaðarvara var meira en helmingur gjaldeyristekna þjóðarbúsins af útflutningi vöru á síðasta ári eða 53%. Útflutningur iðnaðarvara nam 321 milljarði króna á síðasta ári. Útflutningurinn á iðnaðarvörum jókst um 14,7% frá árinu 2017 sem er umtalsverður vöxtur en þá nam útflutningurinn 280 milljörðum króna. Í samanburði má nefna að útflutningur sjávarafurða var 240 milljarðar króna eða 40% af gjaldeyristekjum af vöruútflutningi þjóðarbúsins á síðasta ári. Gjaldeyristekjur þjóðarbúsins af vöruútflutningi nam 602 milljörðum króna á síðasta ári og jókst um 16% milli ára.

Gjaldeyristekjur-af-voruutflutningi_1549030620747
Útflutningur iðnaðarvara meira en helmingur gjaldeyristekna - Samtök Iðnaðarins