Beint í efni

Útskrifaðir með sveinspróf í ljósmyndun

Þrír nemendur útskrifuðust með sveinspróf í ljósmyndun í vikunni.

Útskrifaðir með sveinspróf í ljósmyndun

Þrír útskrifuðust með sveinspróf í ljósmyndun þriðjudaginn 21. nóvember. Þeir Daníel Þór Ágústsson, Laimonas Dom Baranauskas og Sigurður Gunnarsson tóku formlega við sveinsprófsskírteinum sínum við hátíðlega athöfn sem Iðan fræðslusetur stóð fyrir.

Ljósmyndarafélag Íslands veitti þeim viðurkenningar fyrir árangurinn með bókagjöf og blómum en bækurnar að þessu sinni voru eftir þá feðga Chris Lund og Mats Wibe lund. Guðmundur Viðarsson formaður Ljósmyndarafélags Íslands og jafnframt formaður sveinsprófsnefndar í ljósmyndun afhenti sveinsprófsnemum viðurkenninguna fyrir hönd félagsins.

Myndir/Jón Svavarsson

Á myndinni hér fyrir ofan eru, talið frá vinstri, Guðmundur Viðarsson, Daníel Þór Ágústsson, Sigurður Gunnarsson og Laimonas Dom Baranauskas.