Jólafundur Málarameistarafélagsins var haldinn í Húsi atvinnulífsins 12. desember síðastliðinn. Það var góð stemming í húsinu enda hátt í þrjátíu félagsmenn sem létu sjá sig. Slippfélagið sá mönnum fyrir góðum jólamat frá Pottinum og pönnunni sem var borðaður upp til agna. Uppistandarinn Örvar Þór Kristjánsson mætti frá Njarðvík og fór með stórskemmtileg gamanmál.
Vel sóttur jólafundur Málarameistarafélagsins
Jólafundur Málarameistarafélagsins fór fram í Húsi atvinnulífsins 12. desember.

Tengt efni
Hádegisfundur Málarameistarafélagsins um lífeyrismál
Málarameistarafélagið stóð fyrir vel sóttum hádegisfundi um lífeyrismál í Húsi atvinnulífsins.

Stjórn Samtaka rafverktaka heimsækir Norðurál
Framkvæmdastjóri og starfsfólk Norðuráls tóku á móti stjórn Samtaka rafverktaka fyrir skömmu.

SI fagna endurskoðun mannvirkjalaga en vilja úrbætur á frumvarpi
Í umsögn SI kemur fram að samtökin fagni fyrirhugaðri endurskoðun mannvirkjalöggjafarinnar en áður en frumvarpið verði lagt fram þurfi að liggja fyrir heildstætt mat á áhrifum breytinganna.



