Fréttasafn



12. maí 2021 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk Nýsköpun

Algalíf fær alþjóðleg líftækniverðlaun

Algalíf sem er aðildarfyrirtæki SI hefur hlotið Alþjóðlegu líftækniverðlaunin 2021 sem besti framleiðandi á afurðum úr náttúrulegu astaxanthíni. Verðlaunin eru veitt árlega í nokkrum mismunandi flokkum, en Algalíf er fyrsta íslenska fyrirtækið til að vinna þau. Þetta er í sjötta sinn sem Alþjóðlegu líftækniverðlaunin eru veitt. Algalíf framleiðir astaxanthín úr örþörungum sem ræktaðir eru í starfsstöð fyrirtækisins í Reykjanesbæ.

Í tilkynningu kemur fram að verðlaunin séu veitt af tímaritinu Global Health and Pharma sem sé eitt víðlesnasta og virtasta fagtímarit á sviði heilsuvísinda. Útgefandi er AI Global Media í Bretlandi sem gefur út tólf mismunandi fagtímarit sem mörg séu leiðandi í umfjöllun á sínu sviði.

Þá segir að Algalíf sé lang stærsta örþörungafyrirtæki á Íslandi og í fararbroddi í Evrópu og hafi getið sér gott orð á alþjóðavettvangi fyrir sjálfbærni, gæði og afhendingaröryggi. „Starfsemin hefur gengið mjög að undanförnu og það er afskaplega ánægjulegt að fá viðurkenningu í formi þessara virtu verðlauna. Þessi verðlaun eru fyrst og fremst rós í hnappagatið fyrir starfsfólk Algalífs,“ segir Orri Björnsson, forstjóri Algalífs.