Prentmet Oddi hefur yfirtekið prentsmiðjuna Héraðsprent á Egilsstöðum ásamt 520 fermetra fasteign félagsins. Í tilkynningu kemur fram að með yfirtökunni skapist rekstrargrundvöllur til að halda úti starfsemi á Austurlandi og þjónusta vel þennan landshluta.
Prentmet Oddi er í dag með starfsstöðvar á höfuðborgarsvæðinu ásamt útibúum á Norðurlandi og Suðurlandi. Samtals starfar félagið nú í yfir 9.500 fermetrum og er með tæplega 80 starfsmenn. Félagið býður upp á heildarlausnir í umbúðum og prentun og nú fá íbúar Austurlands að njóta aukins vöruframboðs í hinum ýmsu vöruflokkum Prentmet Odda.
Í tilkynningu segir að saga Héraðsprents hafi hafist árið 1972 þegar hjónin Þráinn Skarphéðinsson og Gunnhildur Ingvarsdóttir stofnuðu félagið í litlum bílskúr á Egilsstöðum. Með árunum hafi félagið vaxið og dafnaði og hafi verið staðsett í hjarta bæjarins á Egilsstöðum, að Miðvangi 1 sl. 25 ár. Líkt og Prentmet Oddi sé félagið Svansvottað og hafi verið þekkt fyrir góða þjónustu og góð gæði.
Þá segir í tilkynningunni að eigendur Prentmet Odda vilji þakka þeim hjónum Gunnhildi og Þráni fyrir frábært samstarf í gegnum árin.



