Fulltrúar Korea Association for ICT Promotion, KAIT, heimsóttu Samtök iðnaðarins 22. september. Á fundinum var meðal annars rætt um þróun gervigreindar, uppbyggingu gagnavera, menntun og færniþörf atvinnulífsins og tækifæri til aukinna tengsla milli íslensks og suður-kóresks tækniiðnaðar. Fyrir hönd Samtaka iðnaðarins sátu fundinn Erla Tinna Stefánsdóttir, viðskiptastjóri tækni- og hugverkaiðnaðar hjá SI, Freyr Friðfinnsson, viðskiptastjóri á iðnaðar- og hugverkasviði SI, og Kristín Jónsdóttir, lögfræðingur SI.
KAIT voru stofnuð árið 1987 og starfa náið með stjórnvöldum og fyrirtækjum í Suður-Kóreu á sviði upplýsinga- og fjarskiptatækni.
Á fundinum var sérstaklega rætt um stefnu Suður-Kóreu í gervigreind. Þar tók AI Basic Act gildi í janúar 2026 en lögunum er ætlað að skapa heildstæðan ramma um þróun og nýtingu gervigreindar, efla samkeppnishæfni greinarinnar og tryggja um leið öryggi og traust við notkun tækninnar. Fulltrúar KAIT ræddu meðal annars hvernig Suður-Kórea leitast við að skapa skilyrði fyrir áframhaldandi vöxt og nýsköpun samhliða regluverki um áhættusama notkun gervigreindar.
Uppbygging innviða fyrir gervigreind var einnig til umræðu. Suður-Kórea samþykkti á árinu AIDC Special Act, sérstök lög um uppbyggingu og þróun AI-gagnavera sem taka eiga gildi í febrúar 2027. Lögunum er meðal annars ætlað að einfalda leyfisferla og greiða fyrir fjárfestingu og uppbyggingu gagnavera. Í því samhengi ræddu fulltrúar KAIT þróun á AI-gagnaverum og áherslu Suður-Kóreu á stafrænt fullveldi og eigin innviði fyrir gervigreind.
Einnig var rætt um orkuöflun, tengsl gagnavera við nærsamfélög og hvernig menntakerfið getur svarað færniþörf atvinnulífsins. Ísland og Suður-Kórea standa þar frammi fyrir ýmsum sambærilegum áskorunum, meðal annars varðandi aðgengi að sérhæfðu starfsfólki. Í Suður-Kóreu hefur meðal annars verið byggt upp samstarf atvinnulífs og háskóla og opinber stuðningur við styttra starfsmiðað nám.
KAIT kynnti jafnframt World ICT Show sem fram fer árlega í Seúl í apríl og ræddi möguleika íslenskra fyrirtækja á þátttöku og frekari tengslamyndun við suður-kóreskt tæknisamfélag.




