Fréttasafn



4. maí 2026 Almennar fréttir Mannvirki Starfsumhverfi

Allar stéttir í byggingariðnaði farnar að finna fyrir kólnun

Jón Sigurðsson, formaður Meistarafélags húsasmiða, segir í Morgunblaðinu að allar stéttir í byggingariðnaði séu farnar að finna fyrir kólnun á markaði. „Það er farið að herða á markaðnum öllum.“ 

Í frétt blaðsins kemur fram að Jón tali um viðsjárverða hringrás vaxtahækkana og stöðnunar byggingarbransans. „Þegar stýrivextirnir hækka fer byggingarbransinn í lægð, ekkert er byggt og uppsöfnuð eftirspurn verður til. Þá réttast stýrivextir af, fólk fer aftur að kaupa íbúðir, en þá svarar framboðið ekki eftirspurninni og verðið fer upp úr öllu valdi, sem knýr áfram verðbólgu og vaxtahækkanir.“ Hann segir að því megi byggingariðnaðurinn ekki staðna heldur verði að halda dampi. „Annars förum við alltaf sama og sama hringinn.“ Staðan leiðir það af sér að margir húsasmíða- og pípulagninganemar fá hvergi starfssamning, sem er ein forsenda þess að þeir ljúki námi sínu. „Það er engin launung á þeirri þróun, við erum farin að fá símtöl um krakka sem hreinlega komast ekki á samning,“ segir Jón í fréttinni.

Félagsmenn svartsýnir á komandi vetur

Í frétt Morgunblaðsins kemur jafnframt fram að vaxtastigið virðist síður bitna á múrurum og málurum. Formenn félaga múrara- og málarameistara horfa þó miður bjartsýnum augum til haustsins. Hannes Björnsson, formaður Múrarameistarafélags Reykjavíkur, segir félagsmenn svartsýna á komandi vetur sökum hás vaxtastigs og þess hversu erfitt virðist orðið að selja nýjar íbúðir. „Það hefur ekki borið á því ennþá, en það kemur að því að menn fari að halda að sér höndum.“

Stjórnvöld endurgreiði virðisaukaskatt fyrir framkvæmdir að fullu

Einnig er rætt við Kristján Aðalsteinsson, formann Málarameistarafélagsins, sem segir að þótt sannarlega sé einhver samdráttur í nýbyggingageiranum sé viðhaldsmarkaðurinn að stækka og sveiflurnar því ekki mjög miklar. „En við kvíðum þó óneitanlega vetrinum fyrir hönd kollega okkar sem eru í nýbyggingageiranum.“ Í fréttinni kemur fram að Kristján leggi til að stjórnvöld grípi til þeirrar mótvægisaðgerðar að endurgreiða virðisaukaskatt fyrir framkvæmdir að fullu sem sé fyrirkomulag sem nýlega hafi verið afnumið enda myndi það ýta undir atvinnusköpun.

Morgunblaðið, 4. maí 2026.