Fréttasafn



18. sep. 2023 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk Nýsköpun

Atmonia hlýtur Nýsköpunarverðlaun Samorku

Atmonia sem er aðildarfyrirtæki SI hlaut Nýsköpunarverðlaun Samorku 2023 sem afhent voru á opnum fundi í Kaldalóni í Hörpu. Atmonia var stofnað árið 2016 af Agli Skúlasyni, Helgu Dögg Flosadóttur og Arnari Sveinbjörnssyni með það að markmiði að þróa róttæka og sjálfbæra tækni til að nýta efnahvata við rafefnafræðilega framleiðslu á ammóníaki án losunar gróðurhúsalofttegunda.

Í tilkynningu segir að ammoníak sé mikilvægt fyrir áburðarframleiðslu, en áburður tryggir matvælaöryggi um allan heim. Hins vegar sé sú aðferð sem notuð sé til framleiðslunnar mjög mengandi og valdi 1-2% koltvísýringsútblæstri af mannavöldum í heiminum. Þessi nýja tækni hafi möguleika á að umbylta því. Þá sé einnig hægt að nýta ammoníak sem rafeldsneyti á stærri farartæki. Þá segir að tækni Atmonia sé einkaleyfavarin sem beri vott um nýnæmi hennar. 

Einnig kemur fram að við mat dómnefndar hafi verið horft til ýmissa þátta eins og nýnæmis, samsetningu teymis, verðmætis fyrir Ísland, markaðstækifæra, verðmætis m.t.t. loftslagsmála og nýtingu orku, vatns og hliðarstrauma fyrir verkefnið. Dómnefndin var einróma í mati sínu og telur að framgangur verkefnisins geti haft afar jákvæð og þýðingarmikil áhrif. 

Þetta er í þriðja sinn sem Nýsköpunarverðlaun Samorku eru afhent. Laki Power hlaut viðurkenninguna árið 2021 og Alor árið 2022.

Á vef Samorku er hægt að nálgast nánari upplýsingar.

Á myndinni eru, talið frá vinstri, Finnur Beck framkvæmdastjóri Samorku, Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri KLAK - Icelandic Startups og talsmaður dómnefndar og Guðbjörg Rist framkvæmdastjóri Atmonia.

Hér er hægt að nálgast myndband um verðlaunahafann:

https://vimeo.com/865661316