Aukið atvinnuleysi í byggingariðnaði
„Við sjáum að atvinnuleysi í byggingariðnaði hefur aukist og samkvæmt upplýsingum frá Vinnumálastofnun voru 1.158 atvinnulausir núna í maí samanborið við 896 í maí í fyrra sem er 29% vöxtur á milli ára og var vaxandi milli áranna þar á undan,“ segir Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur SI, í frétt Morgunblaðsins um samdrátt sem farinn er að gera vart við sig í byggingariðnaði. Hann segir að í apríl hafi tæplega 19.000 verið starfandi en á sama tíma í fyrra hafi þeir verið 19.235 sem sé fækkun um 250 manns.
Arðsemin dregst saman
Þegar blaðamaður spyr Ingólf um stöðuna á fasteignamarkaðnum og sölu á nýjum íbúðum segir hann að íbúðum sem hafi stoppað á byggingarstigi hafi fjölgað. „Við sjáum íbúðir með óbreytt framvindustig milli talninga og síðustu tölur frá því í mars sýna töluverða breytingu milli ára þar sem íbúðum fjölgaði úr 781 íbúð í 1.437 íbúðir sem er talsverð aukning.“ Þá segir hann að undir niðri séu efnahagsástandið, hægari hagvöxtur, hærri stýrivextir og þrálát verðbólga, aðalþættirnir sem dragi úr fjárfestingum. „Síðan bætast við skatta- og gjaldahækkanir sem vega að greininni þannig að arðsemin hefur dregist saman því óseldar íbúðir á háum vöxtum hafa hrannast upp.“
Morgunblaðið / mbl.is, 26. júní 2026.


