Fréttasafn



4. júl. 2022 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk Landssamband bakarameistara

Bakarar vilja sjálfir flytja inn hveiti

Rætt er við Sigurð Má Guðjónsson í Bernhöftsbakaríi, formann Landssambands bakarameistara, LABAK, í Morgunblaðinu þar sem kemur meðal annars fram að bakarar séu nú með í skoðun að hefja eigin innflutning á rekstrarvörum og hráefni, svo sem hveiti, til að bregðast við miklum verðhækkunum að undanförnu. Sigurður Már vinnur að framgangi þess og er í samtali við Bäko, hagsmunafélag þýskra bakara, sem telja má í þúsundum. Í Morgunblaðinu nefnir Sigurður Már sem dæmi um verðhækkanir að 25 kílóa poki af hveiti hafi í byrjun árs kostað bakara á Íslandi 1.600 krónur en sé nú seldur á 3.200 krónur. „Þessar hækkanir koma til vegna stríðsins í Úkraínu og við þeim þarf að bregðast.“

Í umfjöllun Morgunblaðsins kemur fram að í dag séu á Íslandi starfandi alls 46 bakarí en hafi verið fleiri en 100 þegar best hafi látið. Í dag sé þó aðeins um þriðjungur bakaría á Íslandi í samtökunum; 14 bakarí, en 32 utan þeirra. „Við þurfum að fá fleiri til liðs við okkur þannig að efla megi greinina og fagið. Einnig verður að skapa nútímalega ímynd með skírskotun í handverkið og hinn aldagamla bak­grunn greinarinnar,“ segir Sigurður Már sem vill hefja handverksbakstur til vegs og virðingar. Það kemur fram að mest af því brauðmeti sem landinn neytir nú og sé selt í stórmörkuðunum sé verk­smiðjuframleitt. Æskilegt sé hins vegar að verslunarkeðjurnar fari í ríkari mæli að taka inn handunnin brauð og kökur, samanber þróun í verslunum til dæmis í Þýskalandi. 

Morgunblaðið / mbl.is, 2. júlí 2022.