Fréttasafn



29. jan. 2019 Almennar fréttir Starfsumhverfi

Fasteignaskattar ekki heilbrigð gjaldtaka fyrir þjónustu

Í Staksteinum Morgunblaðsins í dag er vakin athygli á háum fasteignasköttum sveitarfélaga á atvinnuhúsnæði undir yfirskriftinni „Skattpíningin skaðar alla“. Þar er vitnað til orða Sigurðar Hannessonar, framkvæmdastjóra Samtaka iðnaðarins, sem segir að skattur sveitarfélaga á atvinnufyrirtækjum sé „yfirleitt í toppi, meðaltalið hjá sveitarfélögunum er rétt undir hámarkinu. Það munar langmest um Reykjavík, stærsta sveitarfélagið þar sem álagningin er í toppi þar sem er vel á annan tug milljarða í fasteignagjöldum á atvinnuhúsnæði fyrir utan íbúðarhúsnæði. Þetta eru háar fjárhæðir. Þó að sveitarfélög hafi lækkað prósentuna á milli ára á atvinnuhúsnæði þá er það samt hækkun í krónum talið af því að stofninn hækkar svo mikið. Þetta kemur til viðbótar við það að skattar á Íslandi eru háir í alþjóðlegu samhengi. Það er auðvitað ekki hægt að bjóða fyrirtækjum upp á þetta til viðbótar við sveiflur, óstöðugleika og innlendar kostnaðarhækkanir. Við sjáum það að laun eru líka há í alþjóðlegum samanburði. Allt leggst þetta á eitt, á sama tíma og hægir á vextinum þá eru sveitarfélögin að taka meira til sín. Gjöldin eru að hækka um 14% á milli 2018 og 2019.“ Í niðurlagi Staksteina stendur að gjöld sem hækki um 14% á milli ára í 3% verðbólgu séu merki um rán en ekki heilbrigða gjaldtöku fyrir þjónustu.

Morgunblaðið, 29. janúar 2019.