Fréttasafn



25. mar. 2020

Fjölbreyttur og öflugur iðnaður myndar viðspyrnu á erfiðum tímum

Eftir síðasta efnahagsáfall fyrir rúmum áratug tókst okkur að snúa vörn í sókn og styrkja undirliggjandi stoðir hagkerfisins og að því búum við nú. Með réttum ákvörðunum í dag, líkt og þá, getum við myndað kröftuga viðspyrnu og náð okkur aftur á strik auk þess að byggja undir hagvöxt framtíðar með skynsamlegum fjárfestingum. Þannig sækjum við fram á erfiðum tímum. Þetta segir Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, í grein sinni í Markaðnum sem fylgir Fréttablaðinu í dag með yfirskriftinni Kröftug viðspyrna með réttum ákvörðunum.

Hann segir að fyrirtæki í öllum atvinnugreinum verði fyrir áhrifum veirunnar sem breitt hafi úr sér yfir alla heimsbyggðina. Áhrifanna gæti bæði á eftirspurnar- og framboðshlið með tilheyrandi tekjumissi. Samkomubann setji strik í reikninginn og óvíst sé hvort hægt sé að nýta afkastagetu fyrirtækja til fulls. Þá sé ekki hægt að ganga að því sem vísu að fá aðföng annars staðar frá. Hann segir að heimurinn hafi stækkað talsvert eftir að skyggja tók á gullöld öryggis og alþjóðavæðingar. Einangrun verði meiri, ekki síst með lokun landamæra. Við slíkar aðstæður komi sér vel að Ísland býr að fjölbreyttum og öflugum iðnaði sem myndi viðspyrnu á erfiðum tímum og sér landsmönnum fyrir nauðsynjum.

Tækifæri gripin núna til að örva eftirspurn til að flýta fyrir bata

Sigurður segir í grein sinni að áður en veiran hafi farið að valda usla um allan heim hafi óveðursský verið yfir íslensku efnahagslífi. Atvinnuleysi hafði aukist og samdráttar gætti í ýmsum greinum. Aðgerða var þá þegar þörf til að blása lífi í glæðurnar en ekki var hjá þeim komist eftir að veirufaraldurinn skall á af fullum þunga. Með því að veita kröftuga viðspyrnu strax samhliða því að bregðast við þeirri lausafjárkrísu sem við blasi geti fyrirtæki staðið af sér storminn og sótt fram þegar óvissu verði aflétt. Þá séu tækifæri gripin núna til þess að örva eftirspurn enn frekar til að flýta fyrir batanum, meðal annars í útflutningi. 

Betra að gera meira heldur en of lítið

Hann segir jafnframt að sérstaklega verði að horfa til verkefna sem geti skilað áhrifum fljótt og hafi jafnframt jákvæð langtímaáhrif. Aðgerðir ríkisstjórnarinnar séu jákvætt og nauðsynlegt viðbragð í erfiðri stöðu. Við þessar aðstæður sé betra að gera meira heldur en of lítið. „Við höfum treyst of mikið á eina atvinnugrein í einu. Fjármálaþjónusta var vaxtargrein fyrsta áratugar þessarar aldar og svo tók ferðaþjónustan við á öðrum áratugnum. Nú þarf að búa þannig í haginn að hagkerfið nái sér fljótt og örugglega á strik þegar aðstæður leyfa en skapa um leið skilyrði fyrir nýjar atvinnugreinar til að vaxa og dafna svo við séum enn betur í stakk búin að mæta áföllum í framtíðinni.“

Hér er hægt að lesa grein Sigurðar í heild sinni.